Andvari - 01.01.1975, Síða 138
136
HERMANN PÁLSSON
ANDVARI
fámálugt. Þó spyr Þorgrímur hana tíðinda. Hún sagði víg Vésteins eða morð.
Þorkell svarar: „Tíðindi myndi oss það hafa þótt eina stund.“ „Sá maður er þar
látinn," segir Þorgrímur „er vér erum allir skyldir til virðing að veita og gera
hans útferð sem sæmiligsta og heygja hann. Og er það satt að segja, að slíkt
er mikill mannskaði. Máttu og segja svo Gísla, að vér munum þar koma í dag.“
Hún fer heim og segir Gísla, að Þorgrímur sat með hjálm og sverð og öllum
herbúnaði, en Þorgrímur nef hafði bolöxi í hendi, en Þorkell hafSi sverð og
brugðið af handfang. „Allir menn voru þar upp risnir, sumir með vopnum.“
„Slíks var að von,“ segir Gísli.“
4. Áður en vígið verður, dreymir Gísla fyrir atburðinum. „Nú bar það til
nýlundu á Hóli, að Gísli lætur illa í svefni tvær nætur í samt, og spyrja menn,
hvað hann dreymdi. Hann vill eigi segja drauma sína. Nú kemur hin þriðja nóttin,
og fara menn til rekkna sinna......“ En undir morgun þá nótt er Vésteinn
myrtur. Eftir vígið segir Gísli Þorkatli drauma sína: „Draum dreymdi mig....
í fyrri nótt og svo í nótt, en þó vil ég eigi á kveða, hver vígið hefir unnið, en á
hitt horfir um draumana. Það dreymdi mig hina fyrri nótt, að af einum bæ
hrökktist höggormur og hjyggi Véstein til hana. En hina síðari nótt dreymdi
mig, að vargur rynni af sama bæ og biti Véstein til bana. Og sagði ég því
hvorugan drauminn fyrr en nú, að ég vildi, að hvorugur réðist.“ I vísu, sem fer á
eftir, kemst Gísli svo að orði: „Biðkat (þ. e. a. s. bið ég ekki) hins þriðja draums
slíks ... vöktum af svefni.“
Einsætt er, að söguhöfundur beinir gruninum ekki einungis að Þorgrími
goða og Þorkatli, heldur einnig að Þorgrími nef, enda er öllum þrem stillt saman
bæði fyrir og eftir morðið. En eins og Theodore Andersson og aðrir hafa rakið,
þá er höfundinum einstaklega annt um að haga svo orðum sínum annars staðar,
að lesendum finnst sjálfsagt, að annarhvor þeirra Þorkels eða Þorgríms hafi
myrt Véstein, enda láta þeir báðir líf sitt í hefndarskyni fyrir dauða hans. En
hér er ekki um sekt eins manns að ræða, heldur eru allir þrír samsekir um
morðið. 1 rauninni er hægt að leysa gátuna á ýmsa vegu; menn gætu til að mynda
látið sér til hugar koma, að morðið 'hafi verið framið af flugumanni, þótt slíkt
kunni að þykja nokkuð langsótt. Verkaskipting þeirra þremenninganna er einstak-
lega eftirtektarverð. Þorgrímur goði smíðar vopnið, og nafni hans magnar það (?),
og hverju hlutverki gegnir Þorkell þá?
í ritgerð sinni um morðið á Vésteini leggur Claiborne Thompson mikla
áherzlu á gildi draumanna; að hyggju hans fela þeir í sér ábendingu í þá átt, að
Þorgrímur goði sé morðinginn. Hann telur, að höggormurinn og úlfurinn
(vargurinn) í draumi Gísla séu eins konar tilvísanir til tveggja höfuðóvina