Andvari - 01.01.1975, Blaðsíða 137
ANDVARI
HVER MYRTI VÉSTEIN í GÍSLA SÖGU?
135
Hér er óþarft að rekja söguþráðinn lengra aftur en til þess sumardags, sem
Þorkell lilerar það, að kona lians hefur átt vingott við Véstein, sem er mágur
°g vinur Gísla bróður Þorkels. Áður liöfðu þeir bræðurnir Gísli og Þorkell,
niagur þeirra Þorgrímur og Vésteinn (bróðir Auðar, konu Gísla) ætlað að sverjast
í fóstbræðralag, en árangurinn varð þó sá, að þeir skiptust í tvo bópa, svo að
Gísli, Þorkell og Vésteinn verða svarabræður annars vegar og Þorkell og
Þorgrímur hins vegar. Þorkell er því í ábyrgðarmeiri og hættulegri stöðu en
binir. Nú mun enginn efast um, að afbrýði Þorkels blýtur að vera aðalástæðan
fyrir morðinu á Vésteini, þótt bins vegar bafi Þorgrímur neitað að gerast fóst-
bróðir Vésteins áður en samband þeirra Vésteins og konu Þorkels varð uppvíst.
Eftir að Þorkell veit sannleikann um konu sína og Véstein, flyzt bann búferlum
°g fer að búa með Þorgrími mági sínum á Sæbóli. Nú má vinza úr þá þætti í
sógunni, sem einkum vita að morðinu, og er þá fyrst þar til máls að taka, sem
fólk er við veizlu að veturnóttum. Fjórar glefsur eru einkum mikilvægar í
þessu sambandi:
1. „Maður hét Þorgrímur og var kallaður nef. Hann bjó á Nefsstöðum
fyrir innan Haukadalsá. Hann var fullur af gerningum og fjölkynngi og var
seiðskratti, sem mestur mátti verða. Honum bjóða þeir Þorgrímur og Þorkell
til sín, því að þeir höfðu þar og boð inni. Þorgrímur var hagur á járn, og er
þess við getið, að þeir ganga til smiðju, báðir Þorgnmarnir og Þorltell, og síðan
byrgja þeir smiðjuna. Nú eru tekin Grásíðubrot, er Þorkell hafði hlotið úr
skiptinu þeirra bræðra, og gerir Þorgrímur þar af spjót, og var það algert að
kveldi. Mál voru í og fært í befti spannar langt.“
2. Morðið á Vésteini á sér stað í aftakaveðri um nótt rétt á eftir, og er
Gísli þá farinn út með mönnum sínum að hyggja að heyjum, en þau eru eftir
inni systkinin, Vésteinn og Auður. „Og nú er mest tóku að drjúpa húsin, þá
snúa þau systkin rekkjum sínum um endilangt húsið, en allir menn aðrir voru
brott flýðir úr húsinu nema þau ein. Nú er gengið inn nokkuð fyrir lýsing,
bljóðlega, og þangað að sem Vésteinn hvílir. Hann var þá vaknaður. Eigi finnur
hann fyrr en hann er lagður spjóti fyrir brjóstið, svo að stóð í gegnum liann.
En er Vésteinn fékk lagið, þá mælti hann þetta: „Flneit þar,“ sagði bann. Og
því næst gekk maðurinn út. En Vésteinn vildi upp standa; í því fellur hann
niður fyrir stokkinn dauður."
3. Þegar Gísli kemur inn og sér bvað gerzt hefur til tíðinda, sendir hann
Guðríði fóstru sína til Sæbóls að njósna um atferli manna þar. „Hún fer og
keniur á Sæból. Þeir voru upp risnir og sátu með vopnum, Þorgrímar tveir og
borkell. Og er bún kom inn, var benni heilsað óbrátt, því að fólk var flest