Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1994, Page 19

Andvari - 01.01.1994, Page 19
ANDVARI GEIR HALLGRÍMSSON 17 II Fyrstu þrjú árin bjó Geir Hallgrímsson ásamt foreldrum sínum og systkinum á efri hæðinni í húsi þeirra við Austurvöll, en það varð síðar Sjálfstæðishúsið í Reykjavík. Hafði Hallgrímur skrifstofu sína á neðri hæðinni. Árið 1929 fluttist fjölskyldan í reisulegt einbýlishús við Fjólugötu 1, sem Hallgrímur hafði reist. Geir gekk í skóla ísaks Jónssonar og síðar í Miðbæjarbarnaskólann, þar sem hann var fluttur upp um einn bekk fyrir góðan námsárangur. Eftir fullnaðarpróf þreytti Geir inntökupróf í Menntaskólann í Reykjavík, en þá voru aðeins teknir 25 nemendur í skólann á ári. Stóðst hann prófið með prýði og settist í Menntaskólann haustið 1938. Á æskuárunum var Geir ylfingur og síðar skáti, og var hann um skeið ritstjóri blaðs, sem ylfingar gáfu út. Hann var jafnan í sveit á sumrin, þrjú sumur hjá Sig- urði Einarssyni, bónda í Reykjahlíð við Mývatn, og eitt sumar hjá Halldóri Vilhjálmssyni, skólastjóra á Hvanneyri, en Halldór var mik- ill vinur Hallgríms Benediktssonar. Þá má geta þess, að hann gekk ungur í íþróttafélagið Víking og lék með því í yngri deildum þess, þótt hann væri ekki íþróttamaður á borð við föður sinn. í Mennta- skólanum staðfestist að Geir var ágætur námsmaður, agaður og at- hugull, og hafði fyrir vikið tíma til að sinna öðrum áhugamálum. Hann var virkur í starfsemi nemenda og var meðal annars ritstjóri Skólablaðsins, „og mun árgangur hans, sjö tölublöð, vera efnismesti árgangur blaðsins fyrr og síðar“ eins og segir í Sögu Reykjcivíkur- skólci. - Geir gekk hiklaust fram fyrir skjöldu, ef verja þurfti á mál- fundum einstaklingsframtak og atvinnufrelsi og andmælti kröftug- lega öllum sósíalisma, og þótti mörgum skólasystkinum hans sem þar færi framtíðarforingi. Geir var um skeið formaður málfundafélags, sem yngri bekkja menn höfðu með sér og nefndist Fjölnir, og þar hélt hann uppi merki lýðræðisþjóðanna. „Menn skiptust í hópa eftir því hvort þeir voru bandamannasinnar eða hlynntir Þjóðverjum,“ sagði Geir eitt sinn, þegar hann rifjaði upp þennan tíma. „Eg var mikill bandamanna- og lýðræðissinni, en þeim, sem héldu með Þjóð- verjum, fundust Bretar að mörgu leyti púkalegir; þar væri atvinnu- leysi og illt efnahagsástand, en allt í röð og reglu hjá Þjóðverjum.“ Geir Hallgrímsson var í stærðfræðideild Menntaskólans. Hann varð vinsæll og vel látinn af bekkjarsystkinum og á þessum árum og hinum næstu í Háskólanum eignaðist hann trausta vini, sem fylgdust 2 Andvari
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.