Andvari - 01.01.1994, Qupperneq 50
48
DAVÍÐ ODDSSON
ANDVARI
Kristján Eldjárn, forseti íslands, tók í lok janúar að þreifa fyrir sér
um myndun utanþingsstjórnar, sem átti að verða undir forsæti dr. Jó-
hannesar Nordals seðlabankastjóra, og hafði Jóhannes goldið jáyrði
við að reyna slíka stjórnarmyndun, yrði þess þörf. Gunnar Thorodd-
sen var líka tekinn að hugsa sér til hreyfings. Lét hann boð berast til
forystumanna hinna flokkanna fram hjá Geir Hallgrímssyni, að hann
væri fús til þess að reyna stjórnarmyndun. Fyrst var rætt um aðild
Alþýðuflokksins að slíkri stjórn, en síðar um samstarf sjálfstæðis-
manna við Framsóknarflokk og Alþýðubandalag. Forystumenn
Framsóknarflokksins og Alþýðubandalagsins gripu þetta boð fegins
hendi, enda sáu þeir sér leik á borði að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn eða
að minnsta kosti að sá fræjum úlfúðar og óeiningar innan hans. Geir
sagði mér síðar, að hann teldi að Framsóknarflokkurinn hefði aldrei
gengið til þessa ódrengskaparleiks, ef Ólafur Jóhannesson hefði
áfram verið formaður hans. í blöðum birtust fyrst fréttir um umleit-
anir Gunnars 31. janúar, og vöktu þær mikla athygli. Daginn eftir
gerði Gunnar grein fyrir viðræðum sínum á fundi þingflokks sjálf-
stæðismanna og lagði til, að gengið yrði til stjórnarmyndunarvið-
ræðna við Framsóknarflokk og Alþýðubandalag. Tillaga hans kom
ekki til atkvæða, því að samþykktar voru tvær aðrar tillögur frá for-
manni þingflokksins, Ólafi G. Einarssyni. Önnur var um það, að
stjórnarmyndunarumboð Geirs Hallgrímssonar væri ítrekað, hin um
það, að stefnt skyldi að minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins með
hlutleysi eða stuðningi Alþýðuflokksins, ef allar tilraunir til myndun-
ar meirihlutastjórnar mistækjust. Þá um kvöldið komu þeir Geir
Hallgrímsson og Gunnar Thoroddsen hvor í sínu lagi fram í sjón-
varpsfréttum, og sáust óneitanlega nokkur reiðimerki á Geir, sem
var annars að jafnaði manna stilltastur. Var augljóst að honum sárn-
aði mjög hvernig komið var fram, svo að vægt sé til orða tekið. Hafa
samþykktir þingflokksins þennan dag síðar verið nokkuð umdeildar.
Ýmsum hefur þótt sem hyggilegra hefði verið að ganga til viðræðna
við Framsóknarflokk og Alþýðubandalag með Gunnari í stað þess
að hafna viðræðunum alveg, eins og gert var. Aldrei verður neitt
fullyrt um það með vissu.
Gunnar Thoroddsen átti aðeins vísan stuðning eins þingmanns,
Eggerts Haukdals, þegar hann hóf stjórnarmyndunarviðræður sínar
við Framsóknarflokk og Alþýðubandalag. En 3. febrúar 1980 lýsti