Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1994, Page 111

Andvari - 01.01.1994, Page 111
ANDVARI HULDUUÓÐ SEM PASTORAL ELEGÍA 109 „ . . . alt form felur í sér nokkra uppgerð“ „Engum ætti að koma það á óvart að íslensku skáldin á 19. öld hafi einnig kunnað að meta hjarðljóðin og þess megi jafnt kenna í frumortum skáld- skap þeirra sem í þýðingum sumra þeirra á honum,“ segir Kristján Árna- son í nýlegri grein um forngríska Ijóðlist." Engum ætti að koma það á óvart að Jónas Hallgrímsson skuli styðjast við fornfræga bókmenntagrein hjarð- ljóða í minningarkvæði um mann sem sjálfur hafði haft þennan gríska og rómverska kveðskap í hávegum. Mesta og frægasta kvæði sitt hafði Eggert Olafsson einmitt ort í anda hinna fornu búnaðarbálka, sem voru grein á meiði hjarðljóðanna alveg eins og pastoral elegían. Hulduljóð eru ekki hefðbundin sveitasælu-harmljóð enda eru þau ekki kveðin um nýlátinn mann. Þau taka hins vegar svo greinilega mið af ýms- um venjum, myndum og minnum þessarar tegundar ljóða að það hlýtur að verða að taka tillit til þess við túlkun kvæðisins. Annars er t.d. hætt við því að túlkandi sjái frumleika þar sem enginn er eða þar sem frumleikinn er öllu heldur fólginn í því hvernig skáldið velur og hafnar þáttum úr hefðinni og snýr þeim jafnvel við eða aðlagar að eigin þörfum og reynsluheimi. Halldór Laxness hefur lagt út af Hulduljóðum með þessum orðum: Það er sagt að heilagur Frans hafi haldið ræður yfir fuglum. En má ég spyrja, hver hefur túlkað með uppgerðarlausari viðkvæmni en Jónas þá ást mannshjartans sem ekki er aðeins í eðli sínu viðkvæmust, heldur einnig djúptækust, ástina til móðurjarð- arinnar og þess sem þar grær, - ég segi „uppgerðarlausari“, ekki óminnugur þess að alt form felur í sér nokkra uppgerð.12 Þetta eru býsna glögg orð: Hulduljóð eru í senn einlægt kvæði en þó fullt af formlegri tjáningu. „Innileikinn“ í vísum Eggerts og smalans felst að nokkru leyti í bragarhættinum sjálfum, sem er einfaldur - stuttar línur, reglubundin hrynjandi, þétt rím. Og formið í víðari skilningi setur svip sinn á kvæðið í heild: hinn „skapheiti“ útúrdúr skáldsins og „innileg“ Ijóð smal- ans í lokin eru í raun nokkuð hefðbundnir þættir í þessari tegund ljóða. Þetta jafngildir auðvitað ekki því að Jónas hafi t.d. „gert sér upp“ sökn- uð og eftirsjá í garð þess sem hann yrkir um, Eggerts Olafssonar. Öðru nær: hann er hér að minnast skáldbróður síns og fyrirrennara á þann hátt sem viðeigandi var, að votta honum virðingu sína einmitt með því að yrkja minningarkvæði á fornum stofni. Eftirmæli sín um Bjarna Thorarensen orti Jónas undir þeim bragarhætti sem það látna skáld hafði haft sérstakt dálæti á. Minningarkvæði sitt um Eggert Ólafsson yrkir Jónas í þeirri sveitasælu- hefð sem þessi forveri hans hafði iðkað á sinni tíð að fornklassískri fyrir-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.