Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1994, Side 121

Andvari - 01.01.1994, Side 121
ANDVARI SVO ER MÁL MEÐ VEXTI 119 hjartað á vörunum, í hjarta sínu, kalinn á hjarta, koma við hjartað í e-m, létta á hjarta sínu, létta steini af hjarta e-s, Ijúka upp hjarta sínu fyrir e-m, missa hjartað í buxurnar, vera með hjartað í buxunum, vinna (hug og) hjarta e-s. I bók Sölva Sveinssonar, íslenskum orðtökum (1993), eru tvö orðtök undir flettiorðinu hjarta (að sjálfsögðu í kaflanum Líkamshlutar í orðtök- um). Þau eru hafa hjartað á réttum stað og vera með hjartað í buxunum. Hið fyrrnefnda er skýrt á þessa leið: „Vera góðviljaður eða göfuglyndur. Tilfinningarnar bjuggu í brjóstinu, í hjartanu að því er fornmenn töldu. Þeir sem höfðu hjartað á réttum stað voru heilsteyptir menn, góðviljaðir og göf- uglyndir.“ Svo er sýnt dæmi um notkun: „Herdís hœkkaði einkunnina úr 7 í 9, en hún hefur nú líka alltaf haft hjartað á réttum stað.“ Enn fremur er vís- að til flettiorðanna brjóst og rif. Af því sem hér var rakið, um orðatiltæki með hjarta að aðalorði, má nokkuð marka mismunandi efnistök og umfang ritanna þriggja, íslenzks orðtakasafns (1991), Mergs málsins (1993) og íslenskra orðtaka (1993). IV Til eru þeir menn, bæði útlendir og innlendir, sem gera gys að hreintungustefnu ís- lendinga, telja hana jafnvel hlægilega rómantík og úrelta íhaldssemi á þessum tímum alþjóðamennsku og stórveldadýrkunar. En því er til að svara að hún hefur þrátt fyrir allt varðveitt samband okkar við fortíðina og fornar bækur okkar, tryggt okkur órofin tengsl við þá fjársjóði íslenzkrar tungu sem á bókum eru skráðir og enn lifa á vörum alþýðu, og síðast en ekki sízt forðað tungu okkar frá því að drukkna í flóði erlendra áhrifa. íslenzk menning er órjúfanlega tengd íslenzkri tungu, íslenzkum bókmennt- um, íslenzkum orðaforða. Rofni þau tengsl, glatist sambandið við fortíðina, mundi þess skammt að bíða að saga íslenzkrar menningar væri öll. (Jakob Benediktsson 1964:108-109) Þessi orð lét Jakob Benediktsson falla fyrir 30 árum en gildi þeirra hefur ekkert rýrnað síðan. í þessum tóni, sem Jakob slær þarna, hljóta íslenskir málræktarmenn að flytja málsvörn sína. Tengslin, sem við eigum enn órofin við fjársjóði íslenskra bókmennta frá upphafi ritaldar, eru grundvöllur ís- lenskrar málstefnu. Veigamikill þáttur í sambandi okkar við fortíðina er orðaforðinn og Jakob nefnir hann sérstaklega í þeim orðum sem hér var vitnað til. Auðvelt er að nefna dæmi um orð og orðatiltæki í íslensku sem geyma tengsl við forna menningu þjóðarinnar. Orðið ökuþór, sem í nú- tímaíslensku merkir „ökumaður“, vísar til Öku-Pórs, hins akandi áss heið- inna manna. Lœðingur nefndist fjötur sem Fenrisúlfur var bundinn með en hann leystist úr Lœðingi. Bráðlifandi íslensk orðtök eru e-ð losnar úr læð- ingi og leysa e-ð úr lœðingi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.