Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1994, Page 129

Andvari - 01.01.1994, Page 129
ANDVARI ÞRJÁR SÖGUR ÚR FRELSISBARÁTTUNNI 127 una á árunum 1929-33. í augum Aðalgeirs er sjálfstæðisbaráttan bein og ótvíræð afleiðing af þjóðerni landsmanna. Inngangsorð bókarinnar byrja á þessum orðum (11): „Þegar á landnámsöld urðu íslendingar sérstök þjóð í eigin landi.“ Þjóðernisvitund þeirra lifir, þótt þeir gangist Noregskonungi á hönd. Upplýsingaröldin var hins vegar alþjóðleg í hugsun og hirti lítið um þjóðleg sérkenni (19). Gegn þessu alþjóðlega viðhorfi risu menn undir merkjum rómantíkur á fyrri hluta 19. aldar (20): „í hinum rómantíska hug- arheimi Tómasar verður fornöldin, gullöld íslendinga, fyrirmyndin sem átti að örva bælda og kúgaða þjóð til nýrra dáða.“ Allt má þetta víst kallast satt og rétt. En þessi saga hefur bara verið sögð áður. A hinn bóginn hefur saga sjálfstæðisbaráttu íslendinga ekki enn verið sögð á prenti út frá þeirri meg- intúlkun sem hefur ríkt meðal evrópskra sagnfræðinga síðustu áratugi, að pólitísk þjóðernishyggja, sjálfstæðisvilji þjóða, sé í grundvallaratriðum söguleg nýjung, orðin til á tímanum milli siðaskipta og 19. aldar. Aðdraganda Alþingis rekur Aðalgeir mjög eftir sömu línum og Páll Egg- ert gerði, frá júlíbyltingunni frönsku, um stofnun stéttaþinganna í Dan- mörku og margra ára tillögugerð íslenskra menntamanna, embættismanna, kansellís og rentukammers, um þátttöku íslendinga í þessum nýja lýðræðis- votti innan danska einveldisins. Síðan kemur alþingisboðskapur konungs 1840, og við tekur tillögugerð um fyrirkomulag þingsins, kosningarétt, kjör- gengi, þingstað. Síðan fellur einveldið í Danmörku og menn fara að bolla- leggja á ný um stöðu íslands í hinu nýja stjórnkerfi Danaveldis. Allt er þetta í meginatriðum afar kunnuglegt þeim sem hafa lesið rit Páls Eggerts og aðrar ævisögur íslenskra stjórnmálamanna frá þessum árum. Það sem Aðalgeir hefur nýtt til málanna að leggja notar hann ekki til að draga upp nýjar línur. Hann ræðir til dæmis ekki hvers vegna Jón Sigurðs- son og flokkur hans drifu ekki saman stjórnarskrárfrumvarp á þjóðfundi og höfðu það tilbúið til umræðu fyrr en rétt í þann mund sem stiftamtmaður hafði áformað að slíta fundi. Af heimildum sem Aðalgeir birtir og segir frá grunar mann þá ástæðu að Jón hafi þurft á öllum fundartímanum að halda til þess að safna meirihlutanum saman og sveigja hann inn á stefnu sína, til að bæla raddir um frestandi neitunarvald konungs og fleira sem hafði verið til umræðu mánuðina á undan en kom ekki heim við þjóðréttarkenningu Jóns. Sú ályktun fellur vel að þeirri niðurstöðu höfundar að þjóðfundurinn hafi markað tímamót á stjórnmálaferli Jóns; eftir hann hafi Jón fyrst orðið ótvíræður leiðtogi og stefnuhöfundur sjálfstæðisbaráttunnar (416-17). En Aðalgeir lætur sér oftast nægja að segja söguna og leggur upp í hendurnar á öðrum að draga ályktanir af henni. Niðurstöðukafli hans er að mestu leyti yfirlit yfir feril og stefnu einstaklinga, íslenskra og danskra, „sem hæst bar þegar skyggnst er yfir sviðið um miðja öldina.“ (424) Sagan er þannig í grundvallaratriðum sögð í persónusniði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.