Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1994, Page 153

Andvari - 01.01.1994, Page 153
ANDVARI UNG SKÁLD í ALDARBYRJUN 151 Undirtitill bókarinnar er býsna víðtækur og lofar miklu (hún heitir reyndar á kápu . . .mannlífið á mölinni", en „menningin" á titilblaði). Hætt er þó við að ýmsir verði fyrir vonbrigðum þegar þeir sjá bókina sjálfa. Þetta er sem sé aðeins kver upp á hundrað síður, þættir um ævi Þórbergs á því skeiði sem hnýsilegast er, mótunarárin frá 1912-24 þegar hann varð sá ritsnillingur sem við þekkjum best og kom til ríkis með Bréfi til Láru. Þetta tímabil er oft kennt við Unuhús sem Þórbergur var viðloða. Hann ætlaði að skrifa sögu þeirra ára í framhaldi af Ofvitanum. Sú bók var aldrei skráð og verður slík missa vitaskuld aldrei bætt. Samt lét hann eftir sig ýmis skrif frá þessum tíma, þar á meðal greinar í handskrifuðu blaði Ungmennafélags Reykjavíkur, Skinfaxa. Sigfús Daðason gaf út Skinfaxa-greinarnar og fleira í bókinni Ólíkar persónur, og áratug síðar gaf Helgi M. Sigurðsson út sýnis- horn bréfa og dagbóka í tveim bókum, Ljóri sálar minnar og Mitt róman- tíska œði. Um þessar tvær bækur og vinnu útgefandans að þeim fjallaði Sig- fús Daðason í grein í Andvara 1989. Nýja bókin eftir Helga, Frumleg hrein- skilni, er afrakstur af grúski hans í handritasafni Þórbergs á Landsbóka- safni. Þar er að finna mikinn heimildaforða sem fræðimenn eiga væntan- lega eftir að ganga lengi í. Bók Helga M. Sigurðssonar er umfram allt ævisöguleg. Hann rekur það helsta sem úr dagbókunum er að hafa um líf Þórbergs og færir sér líka í nyt það sem aðrir hafa um hann ritað. Sumt sem hér er tínt til bætir litlu við það sem áður var kunnugt, svo sem samband Þórbergs og Sólrúnar barns- móður sinnar, sem uppskátt var gert með útgáfu á bréfum Þórbergs til hennar fyrir áratug, Bréf til Sólu, 1983. En annað er auðvitað nýtt hjá Helga, enda hefur hann með lestri sínum öðlast meiri kunnleika á mótun- arárum Þórbergs en nokkur annar. Það sem mestu skiptir er þó komið fram í bókunum tveimur upp úr bréfum og dagbókum sem nefndar voru. Hvernig varð rithöfundurinn Þórbergur Þórðarson til? Þessa hafa ýmsir spurt sig en svarið látið á sér standa. Ferill Þórbergs er eitt af undrum ís- lenskrar bókmenntasögu. Halldór Laxness segir í kafla í Úngur eg var sem af einhverjum ástæðum er tekinn hér upp í viðbæti: „Furður þessa gáfaða og sérvitra manns verða seint taldar.....Einu hefur aldrei verið svarað um Þórberg. Hvernig stendur á því að lítt uppfræddur sveitamaður úr einu afskektasta héraði landsins kemur til Reykjavíkur og fer að yrkja útfrá sjónarmiðum dada, þeirrar stefnu sem þá var í burðarliðnum suðrí álfu, og kalla má undanfara allrar nútímalistar í vestrænum heimi svo í bókmentum sem mynd og tóni.“ Sannast að segja bætir Helgi M. Sigurðsson ekki miklu við það sem fyrri menn hafa nefnt um mótun og þjálfun Þórbergs á rithöfundarbrautinni. Sigurður Nordal nefndi bréfaskriftir hans í þessu sambandi og Sigfús Daða- son bendir á þær þjálfunarbúðir sem Ungmennafélagið og Skinfaxi reynd-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.