Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1995, Page 156

Andvari - 01.01.1995, Page 156
154 GILS GUÐMUNDSSON ANDVARI En Guðmundur hélt ótrauður áfram skrifum sínum. Kjarninn í boðskap hans var þessi: Mörgum er runnin sú skoðun í blóð að mennirnir einir eigi tilverurétt í þessu landi, en náttúran, bæði jurtir og dýr, séu réttlaus. Þetta telur Guð- mundur háskalegan misskilning. Náttúran sé að vísu þolinmóð, en þó fari svo að lokum að hún hefni sín og loki forðabúrum sínum fyrir ræningjum. Aratugum saman mátti heita að Guðmundur Davíðsson væri rödd hróp- andans í eyðimörkinni. Hann var eini íslendingurinn sem barðist af alefli gegn „ráni og gripdeildum úr skauti jarðar“, og brýndi fyrir löndum sínum „að raska ekki jafnvægi náttúrunnar“, heldur fara með náttúrugæðin á skynsamlegan hátt, minnugir þess að ræktun leiði af sér blessun og blómg- un, en ávextir rányrkju séu bölvun og tortíming. Efnismesta ritgerð Guðmundar frá þriðja áratugnum bar einmitt fyrir- sögnina: Rán eða rœktun, 66 bls. að lengd. Birtist hún í tímaritinu Rétti 1923, og kom einnig út sérprentuð. Höfundur fer í upphafi fögrum orðum um ísland á landnámsöld. Það hafi þá verið hreinn sælunnar reitur, auðugt af skógum og öðrum gróðri, griðland fugla, mergð fiska í sjó og vötnum. En jafnskjótt og maðurinn kom, „var eins og hungruðum úlfum hefði verið hleypt á sauðahjörð.“ Menn litu á náttúruauðinn sem ótæmandi uppsprettu. Þeir létu greipar sópa um skóglendið. Þeir gengu á milli bols og höfuðs á geirfuglinum. Rostungum hefur verið útrýmt hér við land. Grimmdarlega hafa menn hagað sér gagnvart hvítabirninum, þegar hann slæðist hingað á hafísum, horaður og hungraður. Hvalamorðingjar fengu að drepa gegndarlaust í skjóli íslenskrar löggjafar. Rjúpan á í vök að verjast; löggjafar jafnt sem lagabrjótar sækja að henni. „Mörgum saklausum skepnum í dýraríki ísands hefur blætt út fyrir þá sök að banasárið helgaði vegandanum eignarrétt- inn.“ Tillögur Guðmundar í landbúnaðarmálum voru róttækar. Hann boðaði ríkiseign jarða og félagsbúskap: „Það var óheppileg ráðstöfun að selja þjóðjarðirnar, eins og gert hefur veið undanfarin ár. Ríkið ætti að eiga allar jarðir í landinu, halda verndar- hendi sinni yfir öllum hlunnindum þeirra og gæta þess að þeim yrði ekki spillt að óþörfu eða úr hófi fram, en veita mönnum aftur á móti lífstíð- arábúð á jörðunum, fyrir sig og niðja sína, meðan þeir vildu sitja þær. Hús, jarðabætur og önnur mannvirki gætu gengið kaupum og sölum, eða yfir höfuð allur sá auður em skapast af ræktun ábúandans sjálfs; það er hans eign, en ekki landið sjálft . . . Það ætti að vera eins auðvelt fyrir sveitabændur að mynda félagsskap til að rækta jörðina og reka félagsbú eins og sjávarbændur að gera út skip í félagi til fiskveiða. Efnalitlir bændur, sem hokra hver á sínu koti, ættu að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.