Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2004, Page 14

Andvari - 01.01.2004, Page 14
12 BJÖRG EINARSDÓTTIR ANDVARI Samherji Auðar Auðuns á vettvangi þjóðmála um árabil, Geir Hall- grímsson, sagði er hann var inntur eftir samstarfi þeirra: „Auður var ósérhlífin, staðföst í skoðunum, skýr í málflutningi og með afbrigðum rökföst og gersneydd því lýðskrumi og væmni sem of mikið er í tísku hjá mörgum stjómmálamönnum. Auður naut mikils trausts að verð- leikum og henni voru stöðugt falin mikil ábyrgðarstörf án þess að hún sæktist eftir því.“ Ætt og uppruni Auður Auðuns fæddist á ísafirði 18. febrúar 1911, yngst fjögurra uppkominna barna hjónanna Margrétar Guðrúnar Jónsdóttur og Jóns Auðuns Jónssonar bankastjóra og alþingismanns. Margrét Guðrún (1872-1963) var dóttir séra Jóns Jónssonar að Stað á Reykjanesi. Átti hún til presta að telja í fimm ættliði og í fjórða lið til Margrétar Finns- dóttur Jónssonar biskups er orð fór af fyrir glæsileik og gáfur, og úrræði þegar að henni svarf í móðuharðindunum. Til hennar má meðal annars rekja Margrétar-nafn í móðurætt Auðar. Eldri systkini Auðar voru Sigríður (1904-1992) er lærði píanóleik og dvaldist um skeið í Englandi og Frakklandi við tungumálanám, hún giftist Torfa Bjamasyni lækni; Jón (1905-1981) sem nam guðfræði við Háskóla Islands og síðan við framhaldsnám í þeirri grein í Þýskalandi, lengst dómkirkjuprestur og prófastur í Reykjavík, eiginkona hans var Dagný Einarsdóttir Auðuns; Ámi (1906-1952) er lagði stund á versl- unarfræði í Lundúnum og varð síðar skattstjóri á Isafirði, hann var kvæntur Sigrúnu Thorarensen. Tveir bræður létust á ungum aldri. Móðurfaðir þessara systkina, séra Jón á Stað (1829-1907), var orðlagður fyrir kunnáttu í tungumálum og hæfni til kennslu. Dæmi þess er að þegar hann lauk stúdentsprófi frá Reykjavíkurskóla 1854 mælti Bjami Jónsson rektor með honum við Trampe greifa og stiftamt- mann sem heimiliskennara fyrir börn greifans vegna óvenjulegrar kunnáttu hans í frönsku. Sinnti hann kennslu greifabamanna um skeið að vetri en var leiðsögumaður útlendra ferðamanna að sumarlagi; kynnti sér síðan lækningar og fékkst við þær ásamt kennslu uns hann tók vígslu 1870 og stundaði prestskap næsta aldarfjórðung. Séra Jón kenndi jafnan piltum undir skóla og böm hans fimm, sonur og fjórar dætur, nutu menntunar heima svo sem kostur var. „Oft hugsaði ég
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.