Andvari - 01.01.2004, Blaðsíða 18
16
BJÖRG EINARSDÓTTiR
ANDVARI
Bernskuár
Eyri við Skutulsfjörð fékk kaupstaðarréttindi ásamt nokkrum öðrum
stöðum á landinu árið 1786. Nokkur verslunarhús höfðu risið, fáein
þeirra standa enn, og fólk tók sér bólfestu á Tanganum. En framvinda
var hæg í fyrstu og þremur áratugum síðar voru réttindin felld niður,
en endurheimt á ný 1866 og Isafjarðarkaupstaður var kominn á kortið.
Verslun og útgerð blómstruðu og í kjölfarið einnig félags- og menning-
arlíf. Erlendir starfsmenn verslana innleiddu lifnaðarhætti úr sínum
heimahögum, leikstarfsemi og tónlist voru iðkaðar, famar lautarferðir
í Tunguskóg og efnt til bátsferða á Pollinum. Kunnir íslenskir lista-
menn voru þar samtíða og þjóðmálaskörungar létu til sín taka. Fjöl-
breytt og glaðvært mannlíf setti svip á athafnabæinn þar sem nær 1850
íbúar voru skráðir á manntal 1910, ári áður en Auður Auðuns kemur
við sögu. Sjálf hefur hún sagt um æskuheimkynni sín: „Ég held að
Isafjörður minna bemskuára hafi verið góður staður fyrir böm að alast
upp á.“
Foreldraheimilið var mannmargt og nær daglega bar gesti að garði.
Margar máltíðir sátu gestir að matborði með heimilisfólki, stundum
svo margir að börnin urðu að víkja. Umræður yfir borðum snerust
mjög um málefni bæjarins og landsmálapólitíkina. Var það að líkum
því á heimilisföðurinn hlóðust margvísleg ábyrgðar- og trúnaðarstörf.
Aður er getið um störf Jóns Auðuns að fiskmati eða eins og það var
orðað „yfirmaður á gæðum fiskfarma frá Isafirði.“ Landsbanki íslands
opnaði útibú vestra, sem tók við af Sparisjóði Isfirðinga, og var Jón
Auðunn ráðinn bókari við stofnun útibúsins 1905 og gegndi því til
1914 þegar hann var skipaður útibússtjóri. Þeirri stöðu sagði hann
lausri 1923, þá orðinn þingmaður, og bankastjórnin syðra taldi þing-
mennsku ekki samrýmast bankastjóm á ísafirði. Jón Auðunn tók
mikinn þátt í bæjarmálum og sat í bæjarstjóm 1916-1920 og aftur
1938-1942 og var þá bæjarstjóri um skeið; norskur ræðismaður á
Isafirði var hann til margra ára. Mætti því segja að stjómmálin komi
óbeint inn í líf Auðar Auðuns strax í uppvextinum, hún er fimm ára
gömul þegar faðir hennar verður bæjarfulltrúi og átta ára þegar hann
tekur sæti á þingi.
Jón Auðunn sat á Alþingi fyrir ísafjarðarkaupstað 1919-1923 og
fyrir Norður-ísafjarðarsýslu 1923-1933 og enn 1934-1937; hann bauð