Andvari - 01.01.2004, Blaðsíða 76
74
BJÖRG EINARSDÓTTIR
ANDVARI
en árið 1967 var það vígt og af því tilefni er tekin mynd af fram-
kvæmdanefnd húsbyggingar og er Auður þar í hópi. Mjög oft var
Auður ræðumaður á fundum félagsins, höfundur greina í ársriti þess,
málflytjandi um ýmis efni í útvarpsdagskrám á vegum KRFÍ, endur-
skoðandi félagslaga og fundarskapa, fundarstjóri á fjölmennum fund-
um og ráðstefnum, fulltrúi þess á fundum erlendis og í einu orði sagt
máttarstólpi í félagsstarfi sem ávallt var hægt að leita til.
Geta skal um einn viðburð þar sem kom sér vel að kraftmikil samtök
kvenna voru snögg að grípa til andmæla. Atvik voru þau að einhverj-
um þingmönnum hugkvæmdist árið 1942 eftirfarandi nýbreytni í
skólakerfi landsmanna: „Hafinn verði skipulegur undirbúningur að
endurreisn Skálholtsskóla, þar sem piltar stundi menntaskólanám, og
athugaðir möguleikar á því, að gera Kvennaskólann í Reykjavík svo úr
garði, að hann geti orðið menntaskóli og vönduð uppeldisstofnun fyrir
stúlkur.“ Þetta var komið til Alþingis sem tillaga að þingsályktun.
Stjórnir Kvenréttindafélagsins og Kvenstúdentafélagsins sendu
Alþingi þegar í stað hörð mótmæli gegn því að sniðganga lög nr. 37,
11. júlí 1911 þar sem konum er veittur sami réttur og körlum til allra
menntastofnana og allra embætta. Auður Auðuns er ein hinna skeleggu
kvenna sem létu heyra frá sér og hún ritar einnig pistil um málið sem
endar svo: „Er þess að vænta, að konur geri sér ljóst, að hér er verið að
vega að nýfengnum réttindum þeirra og fylki sér til mótstöðu gegn
slíku.“
í formannstíð Estherar Guðmundsdóttur hélt KRFÍ hádegisfund 19.
júní 1985 og bauð þangað konum sem sæti áttu á Alþingi. Við það
tækifæri var Auður Auðuns, fyrrum dómsmálaráðherra, sem hafði lagt
af mörkum mikið starf í þágu félagsins, gerð að heiðursfélaga.
Zontaklúbbur Reykjavíkur var stofnaður í nóvember 1941 og var
Auður Auðuns einn 15 stofnfélaga. Zonta er alþjóðleg samtök kvenna
er starfa við stjómun fyrirtækja og annarra stofnana og á sviði
sérmenntunar. Samtökin eru upprunnin í Bandaríkjum Norður-
Ameríku í lok heimsstyrjaldarinnar fyrri og var fyrsti klúbburinn
stofnaður árið 1919 í New York ríki. Zonta hefur um árabil unnið í
nánum tengslum við stofnanir Sameinuðu þjóðanna og lagt þýðingar-
miklum verkefnum lið með áherslu á að bæta stöðu kvenna og efla
sjálfstæði þeirra og sjálfsvitund. Hér á landi eru nokkrir Zontaklúbbar
dreifðir um landið og velja þeir verkefni hver fyrir sig. Meginverkefni
Zontaklúbbs Reykjavíkur hefur verið að styðja heyrnarskerta á