Andvari - 01.01.2004, Blaðsíða 50
48
BJÖRG EINARSDÓTTIR
ANDVARI
áður var nefnt, fer með stjórn félagsmála í Reykjavík undir yfirstjórn
borgarstjórnar og rekur ráðið skrifstofu félagsmála, Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar; þangað leitar fólk úrlausnar á vandamálum
sínum og þaðan er stjómað víðtæku skipulagi á félagsþjónustu við
borgarana.
Auður Auðuns stjómaði undantekningarlítið fundum framfærslu-
nefndar þau ár sem hún var í nefndinni. Mikill fjöldi mála kom inn á
borð nefndarmanna af margvíslegum toga en allt beiðnir, nær
eingöngu frá einstaklingum, um aðstoð í vanda, ýmist tímabundnum
eða viðvarandi. Oft var þörf nærfærni við afgreiðslu mála, þau voru
flest á viðkvæmum persónulegum nótum og þeir voru býsna margir er
veigruðu sér við að æskja opinberrar aðstoðar enda þótt þeim væri ekki
önnur leið fær. Auður lagði mikla alúð í þessa vinnu og leit á málavexti
sem trúnaðarmál líkt og hún gerði um þau málefni er komu á hennar
borð sem lögfræðings Mæðrastyrksnefndar.
í heilbrigðisnefnd átti Auður sæti frá janúar 1961 til júní 1962 og var
ekki minna fundað í þeirri nefnd en öðrum sem hún starfaði í. Þróun
mála á sviði heilbrigðisnefndar var með svipuðum hætti og fram-
færslunefndar, heilbrigðisráði var komið á fót, hliðstætt við félags-
málaráð, sem rekstraraðili sjúkrastofnana borgarinnar og var borgar-
læknir framkvæmdastjóri ráðsins. Þann stutta tíma sem Auður var í
heilbrigðisnefnd voru mest áberandi verkefni sem tilheyrðu heilbrigð-
iseftirliti. Það spannaði fjölmarga þætti varðandi heilbrigðis- og holl-
ustuhætti og beint matvælaeftirlit sem var umfangsmikið. Heilbrigðis-
fulltrúar tóku reglulega sýni í matvælaframleiðslu; aðrir starfsmenn
höfðu eftirlit við skóla, bamaheimili, íþróttamannvirki, baðstaði og
snyrtistofur, einnig frárennslismál og mat á húsnæði og er þá ekki allt
talið er kom til kasta nefndarinnar. Nefndarmenn fóru sjálfir í eftirlits-
ferðir á nokkra staði. Mörg erindi voru send áfram til umsagnar
sérfræðiaðila svo sem borgarlæknis, brunavamaeftirlits og fleiri. Væri
úrskurði nefndarinnar ekki hlýtt hafði hún heimild til að beita ákvæði um
lokun afgreiðslustaða eða leggja hömlur á framkvæmdir sem örþrifaráð
til að koma aðstæðum í æskilegt horf. Heilbrigðiseftirlit var á þessum
tíma frumherjastarf og tímafrekt að afla skilnings almennt á nauðsyn
þess í vaxandi þéttbýli. Vorið 1960 lagði nefndin til við bæjarstjóm að
eftirlit með vinnustöðum yrði fullt starf.
Auður Auðuns var um skeið formaður samninganefndar borgarinn-
ar um kaup og kjör borgarstarfsmanna. Reykjavíkurborg er einn stærsti