Andvari - 01.01.2004, Qupperneq 16
14
BJÖRG EINARSDÓTTIR
ANDVARI
hlýlega til afa míns á Stað sem lagði sig fram um það, sem þá var ekki
títt, að mennta dætur sínar, einkum í tungumálum,“ sagði Auður eitt
sinn. Og Jón bróðir hennar tekur í sama streng í minningum sínum:
„Við nutum þess systkinin, hve menntuð móðir okkar var. Hún vakti
yfir námi okkar, þolinmóð en kröfuhörð ... leiðrétti mig og leiðbeindi.“
Móðurmóðir Auðar Auðuns, prestskonan á Stað, var Sigríður
Snorradóttir (1833-1910) Jónssonar bónda að Klömbrum í Vesturhópi.
Var Snorri einn þeirra húnvetnsku bænda sem yfirvaldið skikkaði í
Vatnsdalshóla 1830 til að vera við aftöku Agnesar og Friðriks þegar, að
boði sýslumanns, „enginn mátti undan líta.“ Sigríður dvaldist sem ung
stúlka í Reykjavík tvo vetur við hannyrðanám hjá Guðrúnu Jónsdóttur
Thorstensen landlæknis, á þeim árum er Sigurður málari Guðmunds-
son var kominn að utan frá námi og beitti sér meðal annars fyrir endur-
nýjun skautbúningsins. Lærði húnvetnska bóndadóttirin að baldýra,
skattera og sauma nýja búninginn og flutti þá kunnáttu með sér er hún
gerðist prestkona á Vestfjörðum til kvenna þar. Dætur hennar urðu því
vel að sér bæði til munns og handa. Auður og systkini hennar minnast
þess að Margrét Guðrún, móðir þeirra, sat með handavinnu er hún
fylgdist með lærdómi þeirra heima við og ísaum iðkaði hún til
æviloka.
Heimasætan unga frá Stað hafði farið til Reykjavíkur þeirra erinda
að nema við Kvennaskólann. Frændi hennar Bjöm M. Olsen, síðar
rektor Reykjavíkurskóla, prófaði þekkingu hennar og mat svo að ekki
þyrfti hún þeirrar skólagöngu við. Margrét Guðrún réðst síðan sem
heimiliskennari að höfuðbólinu Ögri við Isafjarðardjúpl895 og sinnti
því næstu fimm ár.
Garðsstaðir voru í næsta nágrenni við höfuðbólið og skildi Ögursá að
túnin í Ögri og á Garðsstöðum. Milli heimilanna voru gagnvegir, frænd-
semi og gróin vinátta. Á Garðsstöðum bjuggu hjónin Sigríður Jónsdótt-
ir og Jón Einarsson, á föðurleifð hans, ásamt sjö bömum sínum; þeirra
elst var Jón Auðunn (1878-1953). Kennslukonan í Ögri og óðalsbónda-
sonurinn á Garðsstöðum felldu hugi saman og bundust heitorði. Áður
en til hjúskapar kom höfðu báðir foreldrar Jóns Auðuns látist með stuttu
millibili, voru þá þrjú barna þeirra enn í bemsku. Faðir Sigríðar á
Garðsstöðum var Jón Auðunsson á Eyri í Isafirði og bróðir hennar var
Baldvin faðir Jóns alþingismanns og verkalýðsforingja. Foreldrar Jóns
á Garðsstöðum voru Einar Magnússon bóndi þar og Karitas Ólafsdótt-
ir hattamakara Ólafssonar á Eyri í Skötufirði. Þegar Ólafur dvaldist í