Andvari - 01.01.2004, Page 93
andvari
KRISTUR OG FRAMTÍÐARLANDIÐ
91
„stíg stíga“ og „ál ála“ er hún leitaði hjálpar bónda, fiskimanns og verka-
manns, fulltrúa alþýðunnar, til að snúast til vamar, en enginn vogaði að fórna
tímanlegum hagsmunum fyrir frelsi þjóðarinnar. Loks tókst óvinunum að slá
hring um Sóleyju, fjötra hana og fangelsa. Undir lok ljóðsins rekur hún raun-
ir sínar fyrir umkomulausri mús sem vanið hafði komur sínar í varðhaldið.
Músin svaraði með augnaráði sem enginn veit hvort hafði að geyma „örvænt-
ing ellegar fyrirheit". I millitíðinni hafði riddarann þó dreymt draum sem fól
í sér von um nýtt upphaf, um að allt yrði eins og fyrr. I lok ljóðsins sefur
brúðguminn þó enn og Sóley er enn í fjötrum.81 Kvæðinu lýkur því með
herhvöt til þjóðarinnar:
Hermdu mér Þjóðunn Þjóðansdóttir,
vísust af völum:
ætlarðu að lifa alla tíð
ambátt í feigðarsölum
á blóðkrónum einuin
og betlidölum?
Er ekki nær að ganga
í ósýnilegan rann |kastala Sóleyjar og riddarans],
bera fagnandi þann
sem brúðurin heitast ann
út í vorið á veginum
og vekja hann?82
Þjóðin á valið og ber þannig ábyrgð á örlögum sínum og frelsi.
í kvæðinu er m. a. vísað í ritninguna og kristinn trúararf auk þess sem ýmis
meginstef trúarinnar koma fram í ljóðinu og eru að sumu leyti örlagaþættir
sem skipta sköpum í framvindunni. Sóleyjarkvœði er því trúarlegt, sósíalískt
baráttukvæði fyrir þjóðfrelsi og friði.
Meðal þeirra vísana í kristna trúarhefð sem finna má er að búningi Sóleyj-
ar er svo lýst að við linda hennar leiki „lykill frá Róm“.s3 Róm kann hér að
vera rímorð (á móti kóralskóm). Tákngildi orðanna er þó einnig ótvírætt og
vísar það til miðalda bæði hvað varðar búnað húsfreyju og þeirrar rómversku
kristni sem þá var hér við lýði en í henni er lykillinn merkingarþrungið tákn
(sbr. Lykla-Pétur) og lyklavaldið gegnir þar mikilvægu hlutverki eins og
kunnugt er. í fimmta kafla kvæðisins er ástandi landsins lýst um það leyti sem
það var selt í ræningjahendur. Þar segir m. a.:
Yfir myrkviði æ
álagavindar gnauða,
leitt er til slátrunar alla daga
lamb hins snauða
84