Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2004, Side 152

Andvari - 01.01.2004, Side 152
150 MARION LERNER ANDVARI Baldur,/breikkar stirðnað eldasund“.41 Hér er um að ræða kvæði sem snýst um rannsóknarferð Jónasar um fjallið Skjaldbreið. Það vildi svo til að Jónas varð viðskila við förunauta sína í þessari ferð og varð því að sofa undir berum himni eina nótt uppi á Bláskógaheiði. Um þetta segir í lokaerindinu: „Enda skal ég úti liggja,/engin vættur grandar mér.“ Er það tilviljun að í kvæðinu sem óbeint er vitnað í er fjallað um ferð út í íslenska náttúru þar sem hin rómantíska hetja kvíðir engu frá vættunum, þ.e. íbúum ævintýralands- ins?42 Þegar öllu er á botninn hvolft má segja að Bergur Vigfússon sé hér kominn langa leið inn í íslenska rómantík og íslenskan bókmenntaarf. Ekki tekst honum alveg að skýra hvers konar (önnur) ævintýri bíða farfuglanna í þessu landi. Það er svolítið óljóst hvað hann meinar með ævintýrum sem eiga að vera „sönn og hrífandi í einfaldleik sínum“. En hann hefur reynt að sýna fram á að einnig á íslandi, í íslenskri náttúru, búi hinn stórbrotni ævintýraheimur sem æskan sé að leita að. Hann fullyrðir að ungt fólk þurfi einungis að taka sig upp og ferðast um landið til að finna þennan heim handan við raunveru- leikann. Ævintýri og ferðalög Stuttu fyrir jól árið 1939 ákváðu farfuglamir Bergur Vigfússon, Hilinar Krist- jónsson og Anna Ólafsdóttir að ferðast um Kjöl. Þessi ferð er sérlega áhuga- verð vegna þess að Bergur hefur skrifað lýsingu um hana ári síðar eða 1940. Við skoðun þessarar ferðalýsingar verður miklu skiljanlegra hvað Bergur átti við þegar hann tengdi ferðalög og ævintýri svo föstum böndum í grein sinni í Skinfaxa. Það samhengi sem honum tókst ekki alveg að gera ljóst þar verð- ur miklu skýrara í þessari ferðalýsingu. Það má næstum því segja að hann hafi nú sannprófað kenningu sína um ævintýri og ferðalög. Ferðalýsingin kom þó ekki út á sínum tíma, heldur rúmuin 60 árum síðar eða árið 2002 í tímaritinu Skildi.43 Lýsingin er afar vel skrifuð, mjög hrífandi og spennandi, á köflum má kalla hana beinlínis ljóðræna. En allra áhugaverðust er fléttan sem höfundur býr til úr ferðasögu sinni og ævintýrum eða réttara sagt þjóðsögum.44 Frásögnin hefst á þessum orðum: „Er leið á jólaleyfi í skólum í fyrravetur barst í tal með okkur nokkrum félögum... að gaman væri að létta sér upp inn á Kjöl fyrir jólin, fara og dvelja um stund í öræfunum er þau bera svip sagn- anna er við heyrðum í bernsku okkar. Fylla lungun af svellandi tæru fjalla- loftinu, njóta fegurðar háfjallanna og seiða inn í hug okkar áhrif frá fomum sögum og sögnum, þátt úr okkar eigin sögu.“45 Hér kemur skýrt fram að Bergur skilur sögur og sagnir (þ.e. þjóðsögur) sem hluta af persónulegri sögu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.