Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 9
VII
ar og að hann hefir sem íslendingur fundið hjá sér
sterka hvöt og löngun til þess að vinna landi voru
allt það gagn, er hann mætti orka, og sérstaklega
til að leiða til góðra lykta stjórnarbótarmálið, sem
enn var ógjört, þá er hann varð æðsti valdsmaður
á landi hér, 14 árum eptir að þjóðfundurinn hafði
svo hraparlega misheppnazt, og 16 árum eptir að
samþegnar vorir í Danmörku höfðu fengið sina stjóriv
arskrá.
Sören Hilmar Steindór Finsen er fæddur í Kol-
ding á Jótlandi 28. Janúar 1824. Faðir hans var
Jón bæjarfógeti Finsen, Hannesar biskups i Skál-
holti Finnssonar, albróðir Olafs yfirdómara Finsen
(föður þeirra Vilhjálms hæstaréttardómara, Ola póst-
meistara, Jóns stiftsfysikusar og frú Valgerðar, síð-
ari konu Halldórs prófasts Jónssonar á Hofi), amt-
mannsfrúar Þórunnar Thorsteinson og frú Sigríðar,
er átti Arni biskup Helgason i Görðum. Jón bæj-
arfógeti Finsen var fæddur í Skálholti 1792, og ólst
þar upp með foreldrum sínum, til þess er faðir hans
dó 4. Agúst 1796, en eptir það með móður sinni frú
Valgerði Jónsdóttur, sýslumanns Jónssonar frá Mó-
eiðarhvoli, er í annað sinn giptist Steingrími iektor
Jónssyni í Odda, cr siðar varð biskup. Steingrimur
kenndi honum skólalærdóm og útskrifaði hann 1812,
20 ára að aldri, sigldi hann síðan til háskólans, nam
þar lögfræði og fékk embætti í Danmörku. Hann
var bæjarfógeti í Kolding, þá er Ililmar sonur hans
fæddist, en varð fáum árum síðar bæjarfógeti í Ring-
kjöbing, og enn allmörgum árum síðar héraðsfógeti
í Hasle, Vesterlisbjerg, Framlev og Sabro héruðum
á Jótlandi og átti þá heitnili í Apóspm og andaðist