Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 90
GO
ár. Nyrzti bær í Öræfum fyrir hlaupið var að þvf
er sagnir segja Jökulfell; í fornbýlalýsingunni segir
svo um þann bæ: »Jökulfell hefir bær heitið að
fornu, norðvestur af Skaptafelli, þar sem nú er kall-
að Bæjarstaður, í þvi fjalli, sem enn er kallað Jök-
ulfell; hér segja menn að verið hafi kirkja, því sézt
hafa í minni þeirra manna, sem nú lifa, líklegheit
til kirkjugarðs og tóptirnar. Jökulfells er getið í
Hofsmáldaga, sem gjört skal hafa einn mikill bisk-
up1 í Skálholti. Orðin eru þessi: «og helming allra
þeirra fjarna, er liggja til Jökulfells. Það sem ept-
ir er ófordirfað af þessarar jarðar landi, er nú leigt
frá Skaptafelli fyrir 30 álnir«.- í Rauðalækjarmál-
daga 1343 er sagt, að hálfkirkjur séu á Sandfélli og
Jökulfelli. Svínanes hét einn eyðibærinn; hans er
og getið í máldögum; í fornbýlalýsingunni stendur
um Svínanes: »vita menn ei hvar sá bær staðið
hefur. Jón Einarsson og Stefán Ormsson á Hofi
segjast fyrir nokkrum árum fundið hafa í Neskvisl-
inni milli Svinafells og Skaptafells rauðvíðisrapt,
sem rekið liafði fram úr jöklinum, hver verið hafði
utan mjög svartur orðinn*. Berjahólar er sagt að
bær hafi heitið, hjáleiga frá Sandfelli; sá bær var í
vestur frá Sandfelli undir falljöklinum, og var
byggður um 1630; þar hafði 1712 nýlega sézt til
húsa og tópta. Um nokkra aðra bæi í Öræfum get-
ur fornbæjalýsingin og set eg hér orðrétt það sem
þar stendur, því annað vita menn ekki um bæi
þessa: »Gröf halda menn bær heitið hafi útnorður
af Hofi, það er fyrir vestan Skriðulæk upp undir
fjallinu; þar sést til tópta og hefir fundizt af eyri
1) Miehael biskup í Skálholti. Michaelsmáldagi lr>87.
Isl^. fornbrétasaín III, bls. 400—401.