Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 55
25
upp að jökli, gengur Borgarhafnarfjall íram úr henni
og fyrir vestan það er Staðardalur, þar fyrir norðan
heita Hálsar og Hálsatindur upp við jökul. Austan
til í efsta botn Staðardals gengur niður skriðjökull
einkennilega lagaður, gengur mjó álma úr horni
hans langt niður í hlið, jökull þessi er kallaður
Brókarjökull, úr honum rennur Staðará. Það er í
munnmælum, að Norðlingar hafi á fyrri tímum haft
verstöðu í Suðursveit við Hálsasker, á 16. öld og fyrri,
er mælt að þeir hafi komið þangað norðan yfir jök-
ul og farið fram hjá Hálsatindi, og er sagt, að þar
hafi sézt gamlar götuslóðir. Það er sagt, að ver-
ferðir Norðlinga í Suðursveit hafi hætt 1575, er 93
menn drukknuðu við Hálsahöfn á góuþrælinn1. Eins
1) Sóknarlýsing Kálfafellsstaðar eptir síra Þorstein Ein-
arsson (1855) Hdrs. Bókm.f. Kmh. nr. 18. íol. I »ministerial-
bók« Kálfafells prestakalls, sem er byrjuð 1. des.br. 1816, er
getið um ýmsa presta, sem þar haíi verið; þar segir meðal
annars : »Haukur prestur, sem hér skal hafa verið, þá skip
þau (18 að sögn) er héldu tii útvers við Hálsaós eður Höfn
fórust öll á einum degi, að undanteknum þeim bát, er Hauk-
ur prestur var á«. Þó það eiginlega ekki komi þessu máli
við, set eg hér úr sömu kirkjubók það, sem segir um tvo
aðra presta á Kálfafellsstað, af því það er nokkuð einkenni-
legt. »Einar prestur kallaður hinn vísi; hann átti þann son
er Þorbjörn hét, hann sigldi og komst í ógúnst utanlands,
var aptur fluttur hingað og skotið í land undir Kálfafellsstað
og fannst síðan dauður þar sem nú er kallaður Þorbjarnar-
teigur oastratus et hostiliter tractatus«. Um þriðja prestinn
(hinn 7. í röðinni) segir svo: »Síra Bjarni Hallsson, hans
kona Margrét dóttir Magnúsar Péturssonar á Hörgslandi,
þeirra son síra Högni faðir sira Guðmundar í Vestmannaeyj-
um. Næreð Síra Bjarni Hallsson var boðinn í brúðkaup Páls
Einarssonar sýslumanns og um sömu mundir gjörði mágur
hans síra Magnús Pétursson honum boð að iinna sig áður
dæi, sem þá lá veikur. Hinn sinnti meir brúðkaupinu, en