Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 75
45
íieyri undir Sandfell; 1179 var Bakki kirkjujörð frá
Rauðalæk, en eptir að sá kirkjustaður eyddist gekk
jörðin undir Sandfell. Niður af Stórusteinum við
lónið var bærinn Húsavík; þar sáust eun tóptir 1712.
Þriðji bærinn hét Hólar fyrir austan Hnappavelli
»þar sem nú kallast í Hólum«, segir skýrslan, »þar
hefir sézt til tóptaíminni manna sem nú lifa (1712)«;
þessi bær er opt nefndur í gömlum máldögum.
Breiðá átti Hólaland og Hólafjöru, Hnappavallakirkja
átti þar 18 hrossa beit, og 1179 segir í Rauðalækj-
armáldaga, að kirkjan þar eigi »eyrar allar þær
er Hólum hafa fylgt«. Máldagarnir sýnast bera
með sér, að Hólar hafi þegar verið komnir í eyði á
12. öld, úr því talað er um eyrar þær, er Hólum
hafi fylgt, og alstaðar talað um Hólaland. I skýrsl-
unni um Öræfi segir: »Vestur af Hnappavöllum er
haldið bær hafi staðið; þar hefir sézt til tópta.
Halda menn þar hafi staðið Hnappavellir, áður Ör-
æfi af tóku«.
Þó Ilnappavellir nú séu eigi metnir meir en tæp
20 hundruð, þá er þar þó heilt þorp, 7 ábúendur
og alls 54 menn í heimili; slægjur eru þar miklar
fyrir neðan. Frá Hnappavöllum fórum við fyrir
ofan Fagurhólsmýri beint að Hofi; eru þar dólerit-
klappir á leiðinni með óglöggum ísrákum, er koma
þar út undan undirfjöllum jökulsins, og enda að
vestanverðu upp af Hofi með þverbrattri hamrahlíð,
sem gengur út að Fátækramannaliól upp af Skeið-
aráraurum; móberg er hér samt alstaðar undir
dólerítinu og kemur fram aptur við sjóinn, t. d. í
Salthöfða, sem er lágur móbergsrani út af Hnappa-
völlum. Undirfjöll Öræfajökuls eru hér há og hrika-
leg og ber hér minna á jöklinum að neðan; af fjöll-
unum er Stórhöfði (4509 fetj einna merkastur. Milli