Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 203
173
Við dvöldum A Hólum langt fram á dag dág-
ínn eptir í besta yfirlæti hjá Hermanni skólastjóra.
Jeg hafði ekki komið þar síðan búnaðarskólinn var
«tofnaður, og var forvitni á að sjá þær breytingar,
«em þar hefðu orðið. — Ilið mesta stórvirki, sem þar
hefur verið gjört, er skólabyggingin. Það er mikið
hús og eflaust mest hús á Norðurlandi, en ýmsir
gallar þóttu mjer á því sem skólahúsi, sjerstaklega
þóttu mjer gluggarnir allt of litlir í svo breiðu húsi,
■svo birta getur varla verið nægileg í lestrarstofun-
-um, síst í skammdeginu. — Peningshús hafa líka
verið bætt að mildum mun, stórt fjós byggt með norsku
lagi, en er allt of veikviða eptir stærð og stendur
því naumast lengi. Jarðabætur hafa auðvitað verið
gjörðar nokkrar, en þó minni en margur máske ætl-
ar. En þess ber að gæta, að fyrstu ár skólans
voru hin mestu harðindaár og auk þess allr í bernsku
hvað skólann snerti, svo framkvæmdir búsins urðu
tiltölulega litlar, en jörðin áður mjög niðurnídd. Það
sem gjört hefur verið jörðinni til bóta hefur mest
verið unnið hin síðari árin, og hefur þar hjálpast
að gott árferði, mikil aðsókn að skólanum, ríflegur
styrkur af almannafje og síðast en ekki síst dugn-
aður og framtaksemi skólastjóra.
En á eitt verð jeg að minnast, sem ekki hefur
tekið umbótum á Hólum, það er dómkirkjan gamla,
'Sem er hinar einu menjar hinnar fornu vegsemdar
Ilólastaðar. Nýlega hefur allmildu fje verið kostað
til aðgjörðar á kirkjunni, en því miður hafa þeir,
sem þetta verk leystu af hendi eða stóðu fyrir þvi,
■ekki verið vaxnir þeim starfa. — Utan á veggina
hefur verið klesst steinlimi (cement); þetta hefur
grjótið ekki þolað, sementsskánin springur frá og
tekur með sjer nokkuð af steininum. Áður vóru