Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 170
140
vort öflugasta fjelag. Sjóður þess var í árslok 1894
orðinn 26000 kr. (ísaf. XXII. 22.) og á seinni árum
hefur það varið hjer um bil 2000 kr. árlega tit
ýmsra framkvæmda. Eðlilega hafa öll hin fjelögm
töluvert fje til umráða, »safnast þegar saman kem-
ur«,
Á seinni árum hafa smám saman verið stofnaðir
4 búnaðarskólar, eins og kunnugt er, þar sem bænda-
efni eiga kost á að nema búfræði. Auk þess eru
frá þessum skólum komnir margir búfræðingar, er
fara um landið til að kynna sjer, hvað gjöra skuli,.
eða gjöra megi, leiðbeina bændum í búnaði, eða
standa fyrir ýmsum framkvæmdum. Ymsir búfræð-
ingar, eða búfræðingaefni, hafa og verið styrktir til'
utanferða, til að nema búfræði, eða fullkomna sig ii
námi sinu, eða til þess að kynna sjer búnaðarhætti
annara þjóða.
Bæði búnaðarfjelögin og skólarnir hafa þegi&
styrk úr iandssjóði. Fyrir hvert fjárhagstímabil er
ákveðin viss upphæð í fjárlögunum, sem styrkur til
eflingar búnaði. Nokkur hluti þessa fjár er ákveð-
inn sem styrkur til búnaðarskóla, nokkru af því út-
hlutar landshöfðingi, sumpart til búnaðarfjelaga eptir
tillögum sýslunefnda og amtsráða, sumpart til sýslu-
fjelaga, að hálfu eptir fólksfjölda, og að hálfu eptir
samanlagðri tölu jarðarhundraða og lausafjárhundr-
aða1. Síðan alþingi varð ráðandi yfir fje landsins,.
hefur það veitt til eflingar búnaði sem sjerstaka
upphæð 326,890 kr., eða að jafnaði 32,689 kr. á
liverju fjárhagstímabili. Auk þess hefur það veitt
nokkurt fje af þeim styrk, er ætlaður er til verk-
1) Sjá fjárlagafrumvörpin í Þingtíðindum C. og í Stjórn--
artíðindum B.