Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 25
XXIII
hátt á eina millíón króna, og hafði þó kostað miklu
fé til byggingar alþingishússins, auk annars.
Þegar hér var komið, áleit Finsen aðalætlunar-
verki sínu hér á lancli lokið, og með því að hann
sá fram á, að hann mundi eigi fær um að þjóna
svo erfiðu embætti sem landshöfðingjaembættið er,
svo vel væri, þá er hann tæki að eldast, en gat
hins vegar ekki búizt við að geta fengið embætti í
Danmörku, ef hann biði með það til elliára, þá tók
hann eptir 1880 að hugsa um að komast í eitthvert
það embætti erlendis, sem væri við sitt hæfi, en eigi
svo örðugt sem embætti hans hér. Dró þetta meðal
annars til þess, að hann ásamt fólki sínu ferðaðist
'til Danmerkur í Ágústmánuðí 1882, til að dvelja er-
lendis næsta vetur. Þá um veturinn losnaði yfir-
presidentsembættið í Kaupmannahöfn, sem er mjög
há og virðuleg embættisstaða; um það embætti sótti
Hilmar Finsen og var embættið veitt honum 30. Marz
1883. Brá hann sér til íslands þá um vorið, til þess
•að skila af sér landshöfðingjaembættinu, sem Berg-
'ur amfmaður Thorberg hafði gegnt fyrir hann um
D/si missiri og tók nú við sem settur landshöfðingi.
Var Hilmari Finsen haldið mjög fjölmennt samsæti
af Reykjavikurbúum i virðingar- og vináttuskyni 5.
Maí 1883; var honum flutt þakkarkveðja bæði í
bundnu og óbundnu máli fyrir hans mikilhæfu og
heillaríku embættisstarfsemi sem æðsti valdsmaður
landsins í 18 ár, og þess minnzt, hversu mikið Island
ætti honum að þakka. Daginn eptir fór hann al-
fari frá Jslandi til embættis síns i Kaupmannahöfn,
og er það eigi ofhermt, að þakklæti, söknuður og
heillaóskir þjóðarinnar fylgdu honum, enda hafði
hann áunnið sér almenna viðurkenningu landsmanna
fyrir jafnt mikla og góða hæfileika, embættisárvekni,