Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 42
12
fyrir neðan blasir við Hornafjörðurinn, Nesin með-
skrúðgrænum engjum, hólum og sléttum, ótal eyj-
ar og sker í firðinum, nes og tangar, hálendir og
láglendir; en það sem gerir útsjónina allra einkenni-
legasta og stórkostlegasta er viðsýnið yfir suðurrönd
Vatnajökuls alla leið suður í Öræfi; hið efra glitr-
a-ndi hjarnflákar, fram undan þeim höfðar, tindar
og núpar og isfossar niður úr hverri skoru, eru
skriðjöklarnir mjóir i dölunum, en fletjast út að neð-
an, gljáandi jökulfossar hið efra, en óhreinar klaka-
klessur hið neðra á láglendinu. Hvergi annarsstað-
ar á íslandi ganga skriðjökiarnir svo í byggð niður
sem hér og hvergi í Norðurálfu munu menn frá
fjallvegi í einu sjá yfir jafnstórar hjarnbungur og
jafnmarga falljökla.
Fjallgarðurinn upp af Vesturhorni skilur Lón
frá Nesjurn, Hornafjörður og Hornafjarðarfljót Nes
frá Mýrum. Byggðin beggja megin fljóts er opt
kölluð einu nafni Hornafjörður og stundum hefir f
daglegu máli jafnvel Suðursveit verið talin til Horna-
fjarðar og íbúar þessara þriggja sveita einu nafni
verið kallaðir Hornfirðingar1, en það nær engri átt;
ef halda skal nafninu, mætti kalla Nes og Mýrar
Hornafjörð, en rjettast er að nefna hverja sveit
sínu nafni. Nesin ná frá Hoffelli niður að sjó og
frá Hornafjarðarfljótum að fjaligarðinum, er gengur
út að Horni. Fjkdgarður þessi er mjög likur Lóns-
fjöllum, sundur skorinn og toppóttur, graslaus og
skriðu runninn, efni þessara fjalla er hjer um bil
aðjöfnu blágrýti og líparít, af hinni seinni bergteg-
und eru á ótal stöðum ljósar skriður og gangar.
1) í Hornfirðingabrag telur Stefán Ólafsson auðsjáanlega
Suðursveit meb Hornafirði.