Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 58
28
leiti; Kaldakvísl hljóp í bæjarlækinn og eyddi túnið,.
en litlu síðar íéll skriða á bæinn, þar bjó þá Ingi-
mundur bóndi Þorsteinsson Vigfússonar á Felli, kona
hans fæddi honum son meðan á þessum ósköpum.
stóð undir steini nálægt bænum, Sigurð bónda 4
Tvískerjum. Munnmælasagnir eru um það, að bær-
inn hafi eyðzt af þvi, að Ingimundur vildi aldrei
trúa því, sem á hafði verið lagt, að eigi mætti
breyta húsaskipun á bænum, og breytti samt, og þóttl
mönnum því ekkert undarlegt þó svona færi. Niður
af Steinafjalli er Breiðabólsstaðarlón og er það mjög
langt og mjótt, og Breiðabólsstaður út af fjallsend-
anum, þaðan er nokkur spölur inn með fjallinu, að
Reynivöllum, er þar fagurt bæjarstæði undir háum
hlíðum og grænar sléttur fyrir neðan. Utsjón er
þaðan einkennileg, í vestri er Fellsfjall þverhnýpt
með háum eggjum, þar er framan í fjallinu þunn.
hella, klofin frá aðalberginu, og nær raufin fyrir
ofan hana gegnum mörg blágrýtislög, svo hellan er
lagskipt eins og fjallið og tollir þó og stendur þráð-
beint upp með berginu. Fram undan FellsfjallL
kemur Breiðamerkurjökull eins og risavaxinn hvit-
grár skjöldur fram á undirlendið, og upp yfir hann
mænir Öræfajökull eins og mjallahvít skörðótt egg;
þrír eru hnúkarnir upp úr hryggnum og sumstaðar
standa klettarif upp úr hjarninu, ganga þau niður
frá nyrðsta hnúknum og milli miðhnúksins og hins
syðsta. Út í hafi nema Hrollaugseyjar við sjóndeild-
arhringiun, þær liggja viku sjávar undan landi og
eru graslaus eyðisker, er að eins nokkuð skarfakál
á einu þeirra. Hrollaugseyjar eru þrjár og liggja í
röð frá austri til vesturs, austasta skerið er lægst en
mest ummáls, hið annað er minnst skerjanna og ör-
mjótt sund milli þeirra, ekki nema steinsnar, hið)