Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 79
49
röð af háum birlcihríslum, hin hæsta er 17 f'etáhæð.
Rétt fyrir norðau Svínafell taka aptur við stórgerðir
aurar, þar rennur Svinafellsá úr Svínafellsjökli, hún
er mjög ströng og stórsteinótt og all-vatnsmikil, í
vatnavöxtum er Svínafellsá versta vatnsfaíl. Svína-
fellsjökull kemur niður milli Svinafells og Hafrafells,
en norðan við það fell kemur Skaptafellsjökull,
koma jöklar þessir saman fyrir neðan Hafrafell, og
er aurrák mikil á takmörkunum upp að fellinu.
Hafrafell er langur móbergsrani luktur jöklum, efst
á því að framan eru móbergsklettar, sem heita Efri-
og Neðri-Menn. Skaptafellsjökull kemur niður af
Yatnajökli fyrir austan Kristinartinda, en Svínafells-
jökull kemur niður af sjálfum Öræfajökli fyrir innan
Hvannádalshnúk. Fyrir framan Svínafellsjökul heitir
Iíáalda, þar fyrir ofan var fyrrum graslendi, er hét
Freysnes, nú er það undir aurum, þar hefir liklega
bær sá staðið samneíndur, sem getið er um í forn-
um ritum, fornbýlalýsingin 1712segirum þenna bæ:
»Freysnes er sagt bær hafi heitið nálægt í suðaustur
frá Skaptafelli; sést enn til tópta þar nærri sem
fjárhúsin standa, og er enn kallað Freysnes, er leigt
frá Skaptafelli fyrir 30 álnir«. Undan Skaptafells-
jökli kemur Skaptafellsá, hún er lang-vatnsmest
byggðaifvatnanna í Öræfum, en er fremur góð í botn-
inn, hún myndar stói-ar eyrar niður af Skaptafelli
áður hún fellur í Skeiðará. Úr suðurhorni Skapta-
fellsjökuls renna Neskvíslar. Milli Skaptafellsjökuls
og Skeiðarárjökuls er stórt fjalllendi með mörgum
eggjum og tindum; gengur það út undan Vatnajökli,
og skilur Skeiðarárjökul frá Öræfajöklunum; sökum
þess, að fjalllendi þetta er svo stórvaxið og hátt
næst Vatnajökli, þá komast skriðjöklar liér ekki á
nokkru svæði niður á láglendið. Utan í hinni syðstu
4