Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 94
64
torfu, þar var tjaldað og flutt þangað matvæli og
aðrar nauðsynjar. Eptir 'jökulhlaupin kom ógurlegt
öskufall ^og grjótflug, og stóð af þessu hið mesta
myrkur í 3 daga. Eidgangurinn hætti eigi með öllu
fyrr en 25. maí 1728. Gos þetta gjörði mikinn skaða,
mjög stór svæði af' landareign Sandfells gjöreyddust,
Svínafell og Skaptafell skemmdust mjög af öskufalli.
Einn unglingspiltur og 2 stúlkur fórust í vatnsflóðinu
úr Virkisjökli, hlaupin drápu þess utan 600 fjár og
160 hross. Eptir gosið urðu margir 'að flytja sig úr
Öræfum í Suðursveit og Fljótshverfi, en fluttu aptur
er jarðirnar fóru að lagast. Þegar Eggert Olafsson
fór um Öræfin var hlaupið á Kotáraurum enn þá
ekki bráðnað, þar var þá hryggur af grjóti, leðju
og jökulklettum hálf míla á breidd og 2 á lengd,
og var þar mjög illt yfir að fara; þegar Sveinn
Pálsson fór þar um 1794 var jökullinn bráðnaður,
en berar urðir eptir og grjót. Við gos þetta hefir
larigmestur jökull bori/t fram á Kotáraura, en úr
Virkisjökli hefir mest kornið af vatni, minna af jökum.
Öræfi eru einhver hin afskekktasta byggð á
Islandi, stórvötn og sandar á báða vegu, og að-
drættir mjög örðugir, flestir Öræfingar verzla á Papós,
en opt verða þeir enn sem fyrrum að sækja nauð-
synjar sínar á Djúpavog. Það fer þó fjarri því, að
það sjáist á framgöngu Öræfinga, að þeir eru utan
við vanalegar mannabyggðir. Öræfingar eru góðir
menn og gerfilegir, gestrisnir og greiðviknir, fremur
snotrir í framgöngu og alls enginn útkjálkabragur
á þeim; eg kom þar á alla bæi nema tvo, og var
bygging alstaðar fremur góð og hreinlæti með
betra móti eptir því, sem gerist á Suðurlandi.
Timbur er ekki hægt að flytja svo langa leið, og
verða menn að nota rekavið til húsabygginga, og er