Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 33
3
þar efra. Á Héraði sést enn þá víða þunnt vikur-
lag frá þessu gosi og er 1—3 þumlungar af jarð-
vegi ofan á. Mjög mikill munur er á loptslagi og
veðráttu í Héraði ogFjörðum; þó.þoka, súld og rign-
ing sé niðri í fjörðunum, þá er þurrt og heiðríkt á
Iiéraði, hinn hái fjallgarður tekur við vætunni, er
berst frá hafi; í Uthéraði og Jökulsárhlið eru miklu
ineiri rigningar og snjókomur en um Miðhéraðið, og
heiðarnar upp af Fljótsdal eru opt snjólausar langt
fram eptir. Næstu nótt vorum við á Egilsstöðum
og fórum þaðan daginn eptir að Mýrum í Skriðdal.
Lagarfijót prýðir mjög Héraðið, það gengur eins og
mjór fjörður inn milli fella og múla svo langt sem
sést, ef það væri ekki, væri ekki fallegt á Uthéraði
og Miðhéraði, því þar er engin tilbreyting, eintóm
klappaholt og háir ásar með mýrarsundum á milli;
hinir svo kölluðu Vellir eru alls ekki sléttlendir,
þar er hvergi slétt nema litlar skákir með ánum,
hitt eru alltsaman holt og hamrabelti, mjög óslétt og
klungrótt, eins er í fellunum norðan megin fijóts,
nema hvað ásarnir þar eru nokkuð hærri. Á vetr-
um standa ásar þessir upp úr fönnum og er bezt
beit á þeim; hér er mest ætlað upp á útibeit og
víða litlar slægjur, jarðvegur er mjög harður, þunn-
ur og járnblendinn og ekki vel fallinn til jarðabóta,
enda er hér lítið um þær og miklu minna en búast
mætti við í sveitum, sem eru jafnlangt komnar í
fiestu öðru. JÞurkar eru hjer miklir, svo hin harð-
lendu tún brenna, en aptur standa hús hér betur
og lengur en annarsstaðar. Annarsstaðar á landinu
grasgróa bæjarþökin fljótt, en á Héraði er torfið á
bæjunum vanalega skrælnað, þurrt og graslaust, og
verður að hæla torfurnar niður. Hamrabeltin á
Iíéraði eru öll ákaflega isnúin og er það eðlilegt,
1*