Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 109
79
stefnu á sunnanvert Geldingafell; austan -við það
fjall og Vesturdal er dæld raikil frá suðri til norðurs
sem heitir Vatnadæld, í henni eru 3 vötn og rennur
kvisl úr þeim til Jökulsár i Lóni; nyrzta vatnið
er stærst og skilur hár hryggur það frá Kelduár-
vatni, sem er töluvert stærra og liggur í kvos undir
Geldingafelli; á Uppdrætti íslands er vatn þetta sett
allt of norðarlega, þar sem Kelduárvatn er sett á
uppdrættinum á að vera Sauðárvatn, þó nokkru
sunnar, úr því rennur Sauðá og sameinast hún Kelduá
rétt fyrtr ofan drög Þorgerðarstaðadals. Norðan við
Geldingafell kemur litil jökullit kvísl, er heitir Blanda,
hún rerinur i Kelduá1. Á smá-fitjum við Kelduá
áðum við dálitla stund; á hraununum er við fórum
yfir var alstaðar graslaust, þar sjást að eins á stöku
stað einmanalegar kornsúrur, Olafssúrur, geldinga-
hnappar og grasvíðir. Vestan við Kelduá eru
einnig urðir milli hennar og Jökulsár í Fljótsdal, þar
eru klappahryggir og lausagrjót, öldur og smá-hálsar,
þessar urðir ná frá jökli út á Glúmstaðamúla, er
skilur Fljótsdal frá Þorgerðarstaðadal, urðarræma
þessi er kölluð Múlaheiði; vorum við tvær stundir
að komast yíir hana að Borgá og höfðum þá verið
9 stundir úr Víðirdal. I Bergá eða Bergkvisl er
jökulvatn, hún kemur sunnan úr Vatnajökli undan
iitlum skriðjökli og feilur í Jökulsá á Eyjabökkum
rétt hjá göngumannakofa; eru holtahryggir og háar
klappir í tangunum miili ánna. Rétt hjá göngu-
mannakofanum tjölduðum við og vorum þar um
1) Sveinn Pálsson getur þess (Journal III. bls. 143), ab
fyrr hali Ifelduárvatn verið kippkorn frá jöklinum, en þá
(1794) gangi jökull í þab. Það er mjög efasamt, hvort Sveini
helir verið hermt rétt frá þessu.