Andvari - 01.01.1895, Blaðsíða 103
73
þar Leiðartungur, er upp er farið, þar er fremur
bratt, en götuslóðar glöggir og heldur góðir. Neðst
í Leiðartungum er skógur nokkur og hvannir marg-
ar og geitlur innan um, framar í Múlánum er skóg-
urinn þó miklu meiri og stórvaxnari. Kollumúli er
stór fjallsinúli milli Víðidals og Jökulsár, og er hnúð-
ur á honum að framan og gljúfur hrikaleg á báða
vegu, því Jökulsá og Víðidalsá mætast þar fyrir
fjallssporðinum og hafa báðar grafið sér hyldýpis-
gil í hið gljúpa líparítgrjót. Að neðan er líparít að-
alefni Kollumúlans, en efri hluti hans er úr blágrýti,
en móberg þó ofan á því, einkum fremst i kollin-
um. Um sólsetur vorum við konmir upp á efsta
hrygg Kollumúlans, 2298 fet yfir sjó, og var útsjón-
in þaðan stórhrikaleg um fjalllendin við austurenda
Vatnajökuls, um tinda og jökla, skörðóttar eggjar
og margkvíslaða gljúfradali. Inn af Sauðhamars-
tindi ganga snævi þaktar fjallseggjar upp i jökul
og austan við þær gengur skriðjökull niður í Staðar-
lambatungur, og úr honum kemur Lambatungnaá,
þaðan gengur Jökulsárdalurinn, klungróttur gljúfra-
dalur, norður eptir, milli Kollumúlans og undirfjalla
Vatnajökuls, norður undir Geldingafell; það er all-
stórt fjall við rönd Vatnajökuls uppi á hálendinu,
og mun þess siðar getið. Suður af Geldingafelli er
dalur, sem heitir Vesturdalur, sprettur Jökulsá þar
upp undan skriðjökulsenda, er gengur niður í dal-
botninn; þar sem áin rennur út úr dalnum er í
henni hár foss, iitlu neðar kemur í hana kvísl úr
Vatnadældinni hjá Geldingafelli. Vestan við Jökulsá
ganga því næst út undan jöklinum háar fjallsbrúnir,
þar heitir Suðurfjall, þá kemur mjór skriðjökuls-
tangi niður hlíðina (Suðurfjallsjökull) og nokkru neð-
ar annar skriðjökull miklu stærri (Axarfellsjökull);