Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1929, Page 87
IÐUNN
Lifandi kristindómur og ág.
277
Nafnkunnugt danskt skáld og rithöfundur, Kaj Hoff-
mann að nafni, varð til þess að skrifa ritdóm um bók
Lárusar. í ritdómi þessum farast honum svo orð um
lífsskoðun og andlegt ástand höfundarins, að einkenni
hans sé íhyglin, hann sé »efunarmaðurinn, sem gangi
með dauft bros og fyndni á vörum á barmi örvænt-
ingarinnar, — en langt fyrir neðan sig sjái hann til-
gangsleysi tilverunnar blasa við sér«.
Þetta voru trúarávextirnir, sem Kaj Hoffmann sá af
kristindómsfræðslu Sigurbjörns Ástvaldar Gíslasonar og
Guðrúnar Lárusdóttur, fulltrúa hinnar einu sönnu og
sáluhjálplegu Guðs kristni.
Löngu eftir að ég fór alfarinn úr föðurgarði komst
ég í kynni við andleg fræði, sem opnuðu augu mín að
minsta kosti fyrir tímabundnum tilgangi í tilverunni.
Sonur Sigurbjörns Ástvaldar á að eins eftir að koma
auga á þessi sömu lífssannindi. Eg býst við, að honum
reynist líkt og mér tilgangur hlutanna nokkuð torskil-
inn að öðrum kosti.
I næsta höfuðþætti þessa erindis ætla ég að reyna
að leysa þessa flóknu gátu, sem enginn kristinn prestur
virðist enn þá hafa botnað neitt í: Hvers vegna kom-
um við Lárus Sigurbjörnsson ekki auga á neinn til-
gang í tilverunni? Sá kafli á heita: Dauður kristin-
dómur 03 þú.
Þórbergur Þórðarson.