Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1929, Síða 104
ÍÐUNN
Nýr rithöfundur.
Erich Maria Remarque: Im
Westen nichts Neues
(þ. e. Engar nýjungar frá
vesturvígstöðvunum). 1929.
Im Propylaen-Verlag. Berlin.
Heimsstyrjöldin 1914—’ 18 hefir, eins og vænta mátti,
orðið rithöfundum ófriðarþjóðanna margvíslegt viðfangs-
efni. Vmis konar stríðsrit hafa hrúgazt á erlenda bóka-
markaði. Jafnvel á íslenzku hefir nýlega verið gefin út
bók af þessu tæi, Árni Óla: Kafbátahernaðurinn. End-
urminningar Julius Schopka, Rvík. 1928, og mundi
sennilega vekja athygli, ef hún væri þýdd á eitthvert
heimsmál.
Sum af stríðsritunum hafa verið lesin líkt og flugrit,
en hafa síðan fallið í gleymsku og dá, jafnvel bækur,
sem menn kepptust um að lesa, þegar þær komu út.
Sennilega verða þær margar hverjar aldrei vaktar upp
frá dauðum á ný. Sú bók, sem hér verður lítillega
minnzt, gerir ef til vill sitt til að þrýsta á þær innsigli
algerðrar gleymsku.
Engar nýjungar frá vesturvígstöðvunum. Nafnið bendir
óneitanlega fremur til listaverks en ómerkilegs reyfara,
enda lætur það næsta lítið yfir sér. Það segir að vísu
ekkert til um efni bókarinnar fremur en heiti margra
skáldsagna, en það er valið í sambandi við þann atburð
bókarinnar, sem gengur lesanda svo nærri hjarta, að