Hlín. - 01.10.1901, Blaðsíða 7
HLIN.
Tímarit til eflingar verkfræðilegs og liagfræðilegs framkvæmdalífs á íslandi.
Nr. 1. Reyk.tavíic, 1. OKT. 1901. 1. ár.
* Útgefandi: STEFÁN B. JÓNSSON. *
Kœru landsmenn!
ETTA litla rit, sem hér með byrjar tilveru
sina undir nafninu „Hlín“; svo nefnt, eftir
forngyðju þeirri, er að trú forfeðra vorra, hafði
það hlutverk að afstýra liáska og voða i mann-
heimi; er að nokkru leyti framhald af smárit.i líks efnis,
sem ég gaf út 2 síðustu árin sem ég var í Ameríku,
með nafninu „STJARNAN'1.
Tilgangurinn með útgáfu þessa rits, er fyrst og fremst.
aðallega sá, eins og nafnið bendir til, að reyna að hjálpa
til að afstýra þeim háska, sem nú vofir sýnilega yfir
voru íslenzka þjóðféingi, og sem stafar af röngurn drottn-
andi ,.framfara“- eða „menningar“ stefnum í þjóðlífinu,
samfara hagfærileglri og verklegri fáfræði, í búnaði og iðn-
aði landsins. — Án aðstoðar yðar almennt, er ómögulegt
að ná þessum tilgangi, eu með yðar aðstoð vonast ég til
að ná honum að meira eða minna leyt.i.
Kaupið ]>ví Hlin alnient,
Lesið Hlin vandlega «g' «ft..
Og' i)«rí>ið H'lin skilvíslega.
Flestum mun ijóst vera, að eitt af skilyrðunum fyiir
því að geta lifað farsælu lífi hér a jörðu, er það, að vera
i bæriiegum efnalegum kringumstæðum, sem kaliað er. —