Hlín. - 01.10.1901, Blaðsíða 23
17
þegar sérstakar hindranir koma fyrir af ófæru veðri
eða því um líku.
Siátrunin þarf að fara fram á 1—2 dögum á hver-
jum stað, og er ketið svo flutt um borð og í kæiiklefana
strax, óbrytjað og umbtíðalaust, og flutt á markaðinn í
því ástandi, svo íljótt og tafalaust sem mógulegt er.
Á þenna hátt eru ntí fluttir árlega fleiri skipsfarmar
af alls konar ket.i til Bretlands frá ýmsum löndum, og enda
frá fjarlægum heiinsálfum, auk ógrynna af frystu keti,
sem jafnframt er þa.ngað flutt frá þeim sömu löndum
í hundruðum og þúsundum tonna árlega.
Eftirfyigjandi tafla sýnir, hve mikið í dönskum pund-
u& hefir flutt verið af frosnu sauða og lamba keti til Bret-
lands, frá Nýja-Hollandi og Nýja Sjálandi að eins, hér til-
tekin ár, frá því stí ketverzlun fyrst byrjaði:
Ár Frá N.-Holl. til Bretlands pd. Jj'rá Ny-Sjálandi til Bretlands pd. Samtals livert ár.
1880 20,000 .— — — 20,000
1882 2,862,800 441,950 3,304,750
1886 3,348,000 32,794,400 36,142,400
1890 10,399,200 76,669,650 87,068,750
1894 46,968,000 97,912,950 144,880,950
1899 60,230,050 162,505,000 222,735,050
Frá Bandaríkjunum og (Janada vóru árið 1899 flutt
til Englands 284,703,400 pund (dönsk) af ísvörðu naut-
gripa keti, en árið sem leið (1900) nærri 14 milwnum
punda meira en næsta ár á undan, auk alls þess sem
fiutt hefir verið af frosnu keti frá Ameríku og ísvörðu
keti frá ýmsum öðnun löndum til Bretlands þau árin.
Síðan 1880 hefir verzlun með frosið lcet til Englands
farið stórkostlega vaxandi ár frá ári, eins og sýnt er dæmi
til hér að framan. Og síðan 1891 hefir verzlun með
2