Eimreiðin - 01.07.1932, Blaðsíða 142
374
AFVOPNUN OG AUÐSHVGGJA
EIMREIÐIN
anna, bak við tjöldin, enda talinn pólitískur ráðgjafi hjá þeim
Lloyd George, Venizelos, Clemenceau og Briand. Zaharoff
var grískur að ætt og fæddur á Grikklandi 1849, af fátæk-
um foreldrum, en ábataðist svo á vopnaverzlun sinni að hann
varð einn af ríkustu mönnum heimsins. Saga þessa dular-
fulla manns er líkust æfintýri úr Þúsund og einni nótt.
Frakkar og Bretar keptust um að heiðra hann, og Oxford-
háskóli sýndi honum þann æðsta sóma, sem sú stofnun getur
í té látið. Auðæfi hans voru óhemjuleg, og hann hjálpaði
öðrum mikilsmegandi mönnum til að afla sér fjár. Sumarið
1914, þegar heimsstyrjöldin skall á, var mikill ákafi í mÖnn-
um að kaupa hluti í hergagnafyrirtækjum. Það upplýstist síð'
ar, að Sir Basil Zaharoff jók hluti sína í stórum stíl rétt áður
en ófriðurinn hófst, og sama gerðu ýmsir háttstandandi brezkir
embættismenn, bankastjórar og aðrir nákomnir stjórninm-
Vickers-félagið hafði meira hlutafé en sjálfar Krupps-verk-
smiðjurnar þýzku, og sambönd út um allan heim, þar á meða'
við þýzka vopnasmiðju. En sfórar verksmiðjur hafði það 3
Spáni, Ítalíu, Rússlandi, í ]apan og Kanada. Árið 1927, sam-
einaðist hlutafélagið Sir W. G. Armstrong-Whitworth VickerS'
félaginu, og síðan er það stærsti vopnaframleiðandinn á Bret'
landi og alþjóðlegasta hergagna-fyrirtækið í veröldinni.
Næst ber að telja Schneider-Creusot-hergagnafirmað fransk3’
sem einnig ræður yfir Skoda-verksmiðjunum í TékkóslóvakiU.
Þetta risavaxna fyrirtæki hefur selt vopn til Mexico, ]uS°'
slavíu, Grikklands, Rúmeníu, Tyrklands, Búlgaríu, MonteneSr°’
Rússlands, Argentínu, Spánar, Ítalíu, Svisslands, Persíu, K'i13
og Japan. Þetta félag ræður mestu í einum stærsta iðnaðarhrmS
Frakklands, Comité des Forges, sem átti mikinn þátt í hertoku
Ruhr-héraðsins, og stóð á bak við kröfurnar um Saar-héraði
og Rínarlöndin. Forseti Comité des Forges er Frángois Wsu
del, sem einnig er þingmaður og bankastjóri Þjóðbankans.
Hann ræður einnig yfir einu stærsta blaði Frakka, Jouma
des Débats, og keypti nýlega, ásamt öðrum manni, staers
hlutinn í franska blaðinu Le Temps. Þannig hefur hergaSna
firmað meiri og minni yfirráð yfir sumum stærstu blöðunurn-
Þegar Rússinn Gorguloff drap Doumer, forseta Frakklands, æ
uðu blöðin, fyrir áhrif frá hergagnafirmanu, að gera úr morðmu