Iðunn - 01.06.1886, Blaðsíða 66
360
Fr. Friedoricli:
að aðsóknin þverraði jafnframt auglýsingunum.
þetta Ijetu þeir sjer að kenningu verða og aug-
lýstu lyfið að nýju með stóru letri í ljómandi um-
gjörð; ný vottorð voru samin, ýmislega orðuð, og
aptur óx aðsóknin. Nú rættist það jafnvel, sem
áður hafði verið eintómur uppspuni, að farið var
að fala, uppgötvunina og það fyrir stórfje; en þeir
voru ekki svo grunnhyggnir, að ganga að slíku
boði; því að þá var auðvitað, að öll svikin mundu
komast upp.
Nú eru þeir stórauðugir menn og lifa eins og
blóm í eggí. Enn selja þeir lífs-elixírinn svo, að
skiptir miljónum flaskna um árið. En — hafa þeir
læknað nokkurn mann ? Um það verður ekkert sagt.
forstadrykkur úr ávaxta-vökva er að sönnu skað-
laus, og alþýða gjörir sig opt ánægða, ef lyfin,
sem hún kaupir dýrum dómum, gjöra ekkert
mein.
Arlega er stórfje látið fyrir ónýt lyf; það má
meðal annars ráða af því, hve miklu fje eigendur
lyfjanna geta varið til þess, að auglýsa þau. 011
þessi lyf koma engum manni að neinum notum,
nema höfundum þeirra og blöðunum. Avallt er
nóg til af auðtrúa mönnum og fákænum, og mennt-
un almennings er ekki nógu mikil enn nje algeng
til þess, að reisa rönd við slíkum vjelum.
[þýtt liefir X].
Atliugas. það er ver og miður, að ekki eru öll tál"
lyf meinlaua og gagnslaus. þau eru mörg slcaöleg fyrir
lieilsuna, og )>að er margsannað, að þau hafa bakað
mörgum manni heilsuspilli, en naumast nokkurt dœm1