Iðunn - 01.06.1886, Síða 88
382 Aclolf' Langsted:
kappar hans allir eptir fræga vörn. En þar sem
þeir fjellu, ljetu landar hans síðan reisa minning-
arrnark yfir leiði þeirra, ,og voru letruð á það þessi
orð: »Komumaður, far þú og seg Spartverjum,
að vjer liggjum hjer, hlýðnir við lög þeirran,— þau
lög, að sigra eða deyja að öðrum kosti.
Hvernig voru nú konur þær, er fæddu upp slíka
menn, og sáu aldrei reyki leggja upp af fjand-
rnanna herbúðum í 200 ár, og áttu þó Spartverjar
í megnum ófriði allt af öðru hverju á því tíma-
bili ? —
þ>að er hvorttveggja, að margt var ólíkt með
Spartverjum og Aþenumönnum, enda var staða
kvenna öll önnur í Spörtu en í Aþenu.
I Aþenu höfðu ungar stúlkur sjaldan eða aldrei
samneyti við aðra en ambáttir foreldra sinna eða
liúsbænda. jpar þótti og eigi sæma irjálsbornum
meyjum að þiggja tilsögn utan heimilis. |>ær urðu
því að láta sjer lynda fræðslu þá, er mæður þeirra
og fóstrur gátu veitt þeim. Er af því auðráðið, að
þær hafa hlotið að verða mjög svo eptirbátar
manna sinna síðar meir að menntun til, og því
aldrei getað orðið eins og lagsmenn þeirra á jöfuu
reki. Enda voru konur Aþenumanna lítið annað
en bústýrur þeirra, og var þá auðvitað mál, að
þar gat ekki verið neinni verulegri sambúð til að
dreifa. jpær voru hnepptar inn í dyngju sinni og
máttu eigi þaðan lireyfa sig nema mikið skyldi
við hafa, á hátíðum og tyllidögum. Var þeim þar
með fyrirmunað að afla sjer þeirrar andlegu mennt-
unar, 'er eklci fæst með öðru móti en umgeugni
við karlmenn, ekki sízt er það var auk þess skylda