Iðunn - 01.06.1886, Side 115
4( 9
Pjeturskirkjan í Eóm.
djúpu gryfju, er tekinn var fyrir grunninuni, og
lagði fyrsta steininn undir eina af súluin jpeim hinum,
tröllvöxnu, er hvelfingin átti að standa á. Yoru þá
liðin 1200 ár frá því að Konstantínus mikli hafði
sjálfur borið fyrstu 12 moldarkarfirnar að hinni
gömlu kirkju, og þannig vígt viununa að henni.
Julíus 2. var ákafamaður mikill, og rak eptir vinn-
unni. Hann var mjög tíður gestur á vinnusvæð-
inu, til þess að líta á vinnuna og herða á verka-
mönnunum, ýmist með smá-fjegjöfum eða þá með
barsmíðum. I 8 ár var nú hamast að vinnunni,
svo að Bramante tókst, áður en hann ljezt 3514,.
að ljúka við allar fjórar súlurnar, ásamt múr-
kranzinum, er bera skyldi hvelfinguna, og auk þess
við eigi all-lítið af suður- og vesturlilutum kirkj-
unnar. Að það hafi verið eigi all-lítil vinna, má
ráða af því, að hver af þessum 4 stóru súlum er
á stærð við Nikolai-turn í Khöfn. Júlíus páfi liafði
andazt 1513, en eptirmaður hans, Leó 10., tók
fyrir yfirsmið hinn heimsfræga málara Kafael, enda
hafði Bramante, áður en hann ljezt, bent á liann
sem eptirmann sinn. Kafael stýrði smíðinni með
miklum dug til dauðadags 1520. f>á tóku ýmsir
við, miðlungi nýtir, og gekk smíðin seint, þar til
hún komst í hendur hins heimsfræga listamanna
Michel Angelo 1546. f>ótt hann hefði þá tvo um
sjötugt, var þetta einmitt verkefni, sem samboðið var
feiknasál þessa manns.
Af því að yfirstýrendur smíðarinnar voru orðnir
svona margir, höfðu verið gerðar ýmsar breytingar
á hinum upphaflega uppdrætti. f>egar nú Michel
Angelo tókst á hendur yfirstjórnina, livarf liann