Iðunn - 01.06.1886, Síða 127
421
Pjeturskirkjan í Róm.
25) Syndalausn fyrir þann, sem hefir drepið
leikan munkaþjón 5 grossí
26) fyrir þann, sem liefirdrepið föðuv sinn, móður, systur
eða eiginkonu 5 til 7 —
27) fyrir þann, sem hefir lagt liendur á kennimannsper-
SÓDU 9 —
28) fyrirþann, sem hefir fram- ið gripdeildir, brennur, rán
og morð á leilnnönnum... 8 —
29) fyrir þann, sem hefir mis- þyrmt konu sinui svo, að hún liefir orðið Ijettari
fyrir tímaun 6 —
|>að, sein eptir er af skrá þessari, er ekki haf-
andi yfir fyrir óspilltum unglingum að minnsta
kosti. |>að er upptalning á 6 tegundum andstj'ggi-
legra óskírlífisglæpa,drýgðra jafnvel við allra-nánustu
skyldmenni eða í guðshúsi, og er lausnargjaldið
fyrir hverja tegundina þetta frá 5—7 grossi (1 kr.
85 a. til 2 kr. 59 a.!).
Höf. (Dr. Bergsöe) bætir því við, að hefði Neró
keisari ekki verið heiðingi, heldur kristinn maður
og uppi á dögum Leó páfa tíunda, þá hefðu hinir
hryllilegu glæpir hans ekki haft önnur eins eptir-
köst fyrir hann, eins og sagan segir að þeir hafi
haft. Hefninornirnar ofsóttu hann með blysin og
höggormana, segja sagnaritararnir ; hann hafði eng-
an frið fyrir blóðugri vofu móður sínnar, eins og
Orestes. Neró hafði meðal annars látið myrða