Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Side 23

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Side 23
þegar eitt þjónustufyrirtæki tekur við af öðru í kjölfar opinbers útboðs. Dóm- stóllinn taldi hins vegar að tilskipunin um eigendaskipti að fyrirtækjum ætti í flestum tilfellum ekki við þegar atvik væru með þessum hætti, hvort sem opin- bert útboð færi fram á grundvelli EES-reglna eða ekki. 4.3.3 Skyldan til að greiða viðbótarlífeyrissparnað yfirfærist ekki I Eidesund- og Langeland-málinu50 leitaði dómstóll aðildarríkis álits á því hvort skylda vinnuveitenda til að greiða iðgjald í viðbótarlífeyrissjóð færist yfir á nýjan vinnuveitenda við eigendaskipti að fyrirtæki, atvinnurekstri eða hluta atvinnurekstrar. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að öll réttindi og skyld- ur sem tengdust elli- og örorkulífeyri eða eftirlifendabótum hefðu verið undan- þegin ákvæðum tilskipunarinnar. Dómstóllinn taldi að ekki yrði skilið á milli uppsöfnunar réttinda samkvæmt lífeyristryggingum og greiðslu lífeyrisiðgjalda og því hefði það enga fjárhagslega þýðingu að yfirfæra skyldu til greiðslu iðgjalda þegar það væri ljóst að engin skylda væri til að greiða lífeyri. 4.4 Hugtakið misnotkun í tilskipun EB um vernd launþega við gjaldþrot vinnuveitanda I Samuelsson-málinu, nr. E-l/95, varð EFTA-dómstóllinn að taka afstöðu til þess hvort aðildarríkjum væri heimilt að grípa til nauðsynlegra aðgerða í þeim tilgangi að forðast misnotkun á ábyrgðarsjóði launa. Samkvæmt sænskum lögum áttu starfsmenn ekki rétt á greiðslum frá ábyrgðarsjóði launa ef þeir höfðu fengið greiddar bætur vegna gjaldþrots sama fyrirtækis síðustu tvö árin fyrir yfirlýsingu um gjaldþrot vinnuveitandans. Dómstóllinn taldi þetta ákvæði ekki samrýmast tilskipuninni.51 í máli Erlu Maríu Sveinbjörnsdóttur52 hafði íslenskur starfsmaður höfðað mál á hendur ábyrgðarsjóði launa og krafist þess að fá greidd ógreidd laun í kjölfar gjaldþrots vinnuveitanda. Kröfu hennar hafði verið hafnað þar sem hún var systir eiganda að 40% hlutafjár í hinu gjaldþrota fyrirtæki. Samkvæmt landslögum áttu m.a. systkini þeirra hluthafa sem áttu umtalsverðan hlut í fyrir- tækinu ekki rétt á greiðslu frá ábyrgðarsjóðnum. Það var niðurstaða EFTA- dómstólsins að 2. mgr. 1. gr. og 10. gr. tilskipunarinnar kæmu í veg fyrir að íslenska ríkið gæti viðhaldið slíku ákvæði í landsrétti.53 50 Skýrsla EFTA-dómstólsins 1995-1996, bls. 3; Skýrsla EFTA-dómstólsins 1995-1996, bls. 38. 51 Skýrsla EFTA-dómstólsins 1994-1995, bls. 145. 52 Skýrsla EFTA-dómstólsins 1998, bls. 95. 53 17. málsgrein. 317
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.