Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Side 46
sem biðu tjón af.7 I þessu sambandi er rétt að taka fram að í Parísarsamningnum
voru engin ákvæði um skaðabótaskyldu aðildarríkjanna, hvorki í samningum
þeirra á milli né að því er varðaði bandalagið sem heild, né heldur í tengslum við
hin margvíslegu fyrirtæki sem reglur bandalagsins tóku til. Lögsaga Evrópu-
dómstólsins að því er snerti deilur milli aðildairíkja var rúmt afmörkuð, og ekki
var útilokað að dómstóllinn gæti í úrskurðum sínum tekið á spumingum um
greiðslu skaðabóta. Að því undanskildu að dómstóllinn hefði farið mjög frjálslega
með túlkun Parísarsamningsins, sem tíðkaðist ekki á þessum tíma, þá hefði
úrskurður í þá átt að öllum líkindum verið byggður á meginreglum þjóðaréttar.
3. RÓMARSÁTTMÁLINN FYRR OG NÚ
I Rómarsáttmálanum var áfram byggt á meginþáttum þess kerfis sem komið
hafði verið á fót með KSE varðandi endurskoðun dómstóla á starfsemi stofnana
Efnahagsbandalags Evrópu. Evrópudómstóllinn starfaði áfram en lögsaga hans
náði til mun fleiri sviða en áður. Framkvæmdastjómin fékk heimild til að höfða
samningsbrotamál gegn aðildarríki ef það stóð ekki við skuldbindingar sínar
samkvæmt sáttmálanum, án samþykkis ráðsins.8 Á sama hátt gat aðildarríki
höfðað mál gegn öðru aðildarríki eftir að hafa án árangurs óskað eftir því við
framkvæmdastjómina að hún setti fram rökstutt álit um deiluefnið.9 Aðildar-
ríkjum er skylt að framfylgja dómum sem kveða á um samningsbrot og nú (eftir
Maastricht) getur framkvæmdastjórnin farið fram á það við dómstólinn að hann
leggi sektir á ríki sem framfylgja ekki dómum um samningsbrot.10 Önnur
7 34. gr. KSE er svohljóðandi: „If the Court declares a decision or recommendation void, it shall
refer the matter back to the Commission. The Commission shall take the necessary steps to comply
with the judgment. If direct and special harm is suffered by an undertaking or group of under-
takings by reason of a decision or recommendation held by the Court to involve a fault of such a
nature as to render the Community liable, the Commission shall, using the powers conferred upon
it by this Treaty, take steps to ensure equitable redress for the harm resulting directly from the
decision or recommendation declared void and, where necessary, pay appropriate damages.
If the Commission fails to take within a reasonable time the necessary steps to comply with the
judgment, proceedings for damages may be instituted before the Court“.
40. grein KSE er svohljóðandi: „Without prejudice to the first paragraph of Article 34, the Court
shall have jurisdiction to order pecuniary reparation from the Community, on application by the
injured party, to make good any injury caused in carrying out this Treaty by a wrongful act or
omission on the part of the Community in the performance of its functions.
The Court shall also have jurisdiction to order the Community to make good any injury caused by
a personal wrong by a servant of the Community in the performance of his duties. The personal
liability of its servants towards the Community shall be govemed by the provisions laid down in
their Staff Regulations or the Conditions of Employment applicable to them. (Önnur málsgrein
breytt samkvæmt 26. gr. samrunasáttmálans).
All other disputes between the Community and persons other than its servants to which the
provisions of this Treaty or the rules laid down for the implementation thereof do not apply shall
be brought before national courts or tribunals“.
8 226. gr. Rs. (áður 169. gr.).
9 227. gr. RS. (áður 170. gr.).
10 228. gr. Rs. (áður 171. gr.).
340