Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Side 64

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Side 64
nr. H91 og væri að hluta til staðfest í Maglite-máli EFTA-dómstólsins. Þessi munur ætti rætur að rekja til þess að EFTA-ríkin voru ekki reiðubúin til að taka þátt í víðtækari samvinnu gegn því að framselja hluta af fullveldisrétti sínum til yfirþjóðlegra stofnana. Því hafi aðrar leiðir verið farnar til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt með EES-samningnum, svo sem ákvæði bókunar 35, 6., 7. og 105.-111. gr. EES-samningsins og 3. gr. samningsins um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls. Munurinn á eðli EES-samningsins annars vegar og bandalagsrétti hins vegar hafi í för með sér eftirtaldar afleiðingar: a) Minna svigrúm í EES-rétti en í bandalagsrétti til að leiða óskráðar meginreglur af EES-samningnum þegar slíkar meginreglur hafa ekki verið teknar upp í löggjöf EFTA-ríkjanna eða bomar undir samþykki ríkjanna í hverju tilfelli fyrir sig; b) Lögsaga þeirra stofnana sem settar eru upp samkvæmt EES-samningnum er, að því marki sem hefur áhrif á fullveldisrétt samningsaðilanna, takmörkuð frekar en lögsaga stofnana Evrópubandalagsins og geti þær því ekki með sama hætti búið til og byggt á meginreglum sem ekki koma skýrt fram í EES-samningnum. Þetta ætti einkum við um EFTA-dómstólinn annars vegar og Evrópudómstólinn hins vegar. Um það álitaefni hvort meginreglan um skaðabótaábyrgð ríkis, sem slegið var fastri í Francovich-málinu, hafi orðið hluti EES-samningsins fyrir tilstilli 6. gr. hans, byggði íslenska ríkið á því að þar sem hvorki EES-samningurinn né réttur bandalagsins geymi sérstaka skráða reglu um skaðabótaábyrgð ríkisins vegna samningsbrota sé dómurinn fremur afleiðing af sérstöku eðli banda- lagsréttar, hinu sérstaka lagakerfi sem einkennist meðal annars af framsali fullveldis, sem einnig sé grundvöllur meginreglunnar um bein réttaráhrif. Skaðabótaábyrgð ríkis sé eðlileg afleiðing af og viðbót við þá meginreglu og feli í sér frekari staðfestingu á þeim réttindum sem einstaklingum séu tryggð í bandalagsrétti. Akvæði 6. gr. EES-samningsins vísi til dóma Evrópudómstóls- ins þar sem reyni á frumrétt og afleiddan rétt Evrópubandalagsins, en ekki þeirra dóma sem byggja á óskráðum reglum og meginreglum sem leiða af sérstöku eðli réttarkerfis bandalagsins. Tilvísun í Francovich-dóminum til 10. gr. Rs. (áður 5. gr.), sem er hliðstæð 3. gr. EES-samningsins, breytti að mati íslenska ríkisins ekki framangreindri niðurstöðu og því félli Francovich-dómurinn ekki undir 6. gr. EES-samningsins. Því væru EFTA-ríkin ekki skuldbundin til að leggja þær meginreglur sem þar koma fram til grundvallar við framkvæmd og beitingu EES-réttar. Islenska ríkið hélt því fram að í ljósi þess grundvallarmunar sem er á eðli EES-réttar annars vegar og bandalagsréttar hins vegar verði sambærileg regla um skaðabótaábyrgð ríkis og sett var fram í Francovich-málinu ekki leidd af EES-samningnum sjálfum. Þessi niðurstaða var rökstudd með þeim hætti að Francovich-málið hafi verið mjög til umfjöllunar innan Evrópubandalagsins áður en samningavið- ræðum um EES-samninginn lauk og hlyti það að benda til beinnar ákvörðunar samningsaðila um að útiloka að slikt ákvæði væri tekið inn í EES-samninginn. 358
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.