Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Síða 106

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2004, Síða 106
EES-samningsins, sem væri sett fram bæði í EES-samningnum og Samning- num um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls, beri innlendum dómstólum skylda til að taka mið af ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins. Héraðsdómur Reykjavíkur lagði einnig mat á viðeigandi ákvæði EES- samningsins og komst að því að í samræmi við það sem fram kæmi í áliti EFTA-dómstólsins teldist lántaka af því tagi sem hér um ræddi til frjálsra fjármagnsflutmnga í skilningi 40. gr. EES-samningsins. Með hliðsjón af ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins komst héraðsdómur einnig að þeirri niður- stöðu, með sömu röksemdafærslu og EFTA-dómstóllinn, að ábyrgðargjald það sem hér um ræddi fæli í sér takmörkun á frjálsum fjármagnsflutningum. Dóm- stóllinn vísaði einnig til hins ráðgefandi álits í þeirri niðurstöðu sinni að öðrum ákvæðum EES-samningsins yrði ekki beitt við úrlausn málsins. I niðurstöðu sinni lagði héraðsdómur mat á það hvort 40. gr. EES-samn- ingsins gengi framar innlendri löggjöf þegar þessi lagaákvæði stönguðust á. I þessu sambandi fór dómstóllinn ofan í kjölinn á bókun 35 við EES samninginn og 3. gr. laga nr. 2/1993, en ekki þykir ástæða hér til að gera frekari grein fyrir þeirri umfjöllun. Hæstiréttur byggði dóm sinn í málinu eingöngu á því að ekki beri að líta á Norræna fjárfestingarbankann sem erlendan aðila og staðfesti þegar af þeirri ástæðu niðurstöðu hins áfrýjaða dóms. I dóminum segir: „Þarf þá ekki að fjalla um þá nrálsástæðu stefnda, að 8. gr. laga nr. 37/1961 samrýmist ekki EES- samningnum, sem lögfestur var hér á landi með lögum nr. 2/1993. Hins vegar hafði stefndi tilefni til að fara fram á að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA- dómstólsins um þetta atriði“. Fjármálaráðherra lagði, í kjölfar dóms EFTA-dómstólsins, fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um ríkisábyrgðir sem fól í sér að ábyrgðargjald yrði það sama hvort sem um væri að ræða innlendan eða erlendan lánveitanda. I athugasemdum greinargerðar með frumvarpinu kemur fram að tillagan sé lögð fram í ljósi ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins. í þessu máli hafði álit EFTA-dómstólsins ekki áhrif á dóm Hæstaréttar en leiddi aftur á móti af sér lagabreytingu.34 2.5 Mál E-l/01 Hörður Einarsson35 I fimmta máli EFTA-dómstólsins sem varðar Island, máli Harðar Einars- sonar, leitaði Héraðsdómur Reykjavíkur eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstóls- ins á fjórum áhugaverðum og mikilvægum spumingum. I þessu máli stóðu EFTA-dómstóllinn og Hæstiréttur í fyrsta sinn frammi fyrir spumingunni um það hvaða löggjöf skuli hafa forgang þegar ákvæði í landslögum samræmast 34 Alþt. 2000-2001, 126. löggjafarþing, þskj. 167, 165. mál. 35 Mál E-l/01 Hörður Einarsson gegn íslenska ríkinu. Skýrsla EFTA-dómstólsins 2002, bls. 3.1 dómasafni Hæstaréttar Islands er þetta málið nr. 477/2002 Islenska ríkið gegn Herði Einarssyni, dómur frá 15. maí 2003. 400
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.