Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 64
B Ú N A Ð A R R I T
.58
fyrirkomulagið lil nákvæmrar athugunar. Mér hefir t.
d. dottið í hug, hvort ekki mætti gera eftirfarandi breyt-
ingar á meðferð fjárins í réttunum:
í staðinn fyrir að taka allt féð í einu inn í gerðið eða
almenninginn og láta það standa þar tímum saman, sé
komið upp afgirtum svæðum í sambandi við réttirnar.
Þar væri safnið haft á beit en aðeins teknir smáhópar
í einu inn í almenninginn og féð úr þeim dregið í sund-
ur, á skömmum tíma. Ráðstafanir, svipaðar þessu,
myndu áreiðanlega hafa mikla þýðingu í sambandi við
útbreiðslu mæðiveikinnar. Miklar líkur eru fyrir þvi,
að þær gætu dregið úr sóttinni, sérstaklega ef einstakir
hændur tækju jafnframt upp nákvæmar varnir.
Bændur verða að gæta fullkominnar nákvæmni við
heimaréttun. Iíelzt má engin aðkomukind (ekki held-
ur frá „frískum bæjum“) komast inn í heimarctt eða
hús. Ef slíkt kemur fgrir, verður að taka þær kindur
tafarlaust úr fénu og ef nauðsgnlegt er að ligsa þær,
verður að gera það í sérstöku húsi, t. d. hesthúsi.
Þeir bændur, sem eru líkt settir og bóndinn á Hrís-
um, geta jafnvel vænzt þess, að takast mætti að verj-
ast veikinni til frambúðar. Jafnframt myndi þó vera
sjálfsagt að leitast við að auka mótstöðu stofnsins eftir
því sem auknar athuganir og reynsla á því sviði kynni
að leiða í ljós.
Mér er það fullljóst, að sú reynsla, sem þessar at-
hugasemdir eru byggðar á, nær allt of skammt. Engu
að síður álít ég mjög þýðingarmikið, að veita þessu
athygli, sérstaklega þar sem nú hefir komið til tals, að
l'ramkvæma ráðstafanir gegn mæðiveikinni, sem væru
mun stórkostlegri en nokkuð það, sem hingað til liefir
verið ráðizt í, en það er niðurskurður fjárins á öllu
sýkta svæðinu. Það er tvímælalaust mjög nauðsynlegt
að taka nákvæmlega til athugunar, að með því yrði og
skorinn niður sá hluti fjárins, sem hefir mótstöðu gegn