Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 96
90
BÚNAÐARRIT
I. Svaðastaðaætt.
1. Nr. 112.1) Hörður, Kollcuósi, f. 1922. — Garði 1928.
Brúnn, 139—157—17,0—24,0. —- For. Sörli, Svaða-
stöðum, nr. 71 og Nanna, Kolkuósi. Eig. Hartmann
Ásgrímsson, Kolkuósi. — I. verðl. 1928, 31, 34 og
38. II. verðl. fyrir afkv. 1931 og 38.
Hörður er mikill hestur og mjög fagur og gæð-
ingur eftir því. Nanna, móðir hans, var mjög vel
ættuð, myndarhross og gæðingur. Er Hörður því
vel ættaður í báðar ættir. Hann líkist einkum í
í föðurætt. Margt ágætra hrossa er komið af hon-
um, en það hefir staðið honum fyrir að fá I. verðl.
l'yrir afkvæmi, að sum barna hans likjast honum
lítið eða ekki, þó meiri hluti þeirra séu honum
lík, og prýðileg hross.
:2. Ni'. 168. Brúnn, Svaðastöðum, f. 1932. — Garði
1938: Brúnn, 141—161—18,0—25,0. —- For. Léttir
frá Svaðastöðum, nr. 137, undan Sörla, Svaðastöð-
um nr. 71 og Tinnu, Svaðastöðum, systur Sörla
71. Eig. Pálmi Símonarson, Svaðastöðum. I.
verðl. 1938.
Brúnn er mjög myndarlegur og að sama skapi
fríður og því líkur að hann væri gæðingsefni, en
hann er enn ótaminn, svo alla reynslu vantar á
þvi. Léttir, föður hans, fékk Hrossaræktarfélag
Viðvikurlirepps og reyndist hann prýðilega, en
því ver naut hans skemur við en skyldi, því hann
fékk heymæði á miðjum aldri, svo að varð að fella
hann 12 vetra gamlan. Fer svo oft þegar hestar
eiga ekkert heimili, en verða að hrekjast, milli
manna. Undan Létti komu mörg góð hross og
nokkrir gæðingar.
1) IJví tilgrcini ég ættbókarnúmer hestanna, að margir þeirra
eru samnefndir og aðrir skifta um nöfn og eigendur.