Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 74
68
B Ú N A Ð A R RI T
nautið Hólarauð, og meðal kúnna Skrautu á Völlum,
mynd 6.
Fleiri hópum voru ekki veitt verðlaun á sýningunni,
en það sannar ekki, að þeir hat'i ekki verið góðir, enda
er mjótt á milli í einkun þeirra hópanna er næstir
standa. Ef Nautgriparæktarfélag Skeiðahrepps hefði
sýnt jafnvel ættað naut og Nautgripafélag Hruna-
mannahrepps, þá hefði Nautgriparæktarfélag Skeiða-
hrepps náð öðrum verðlaunum á sýningunni. Ef naut-
griparæktarfélag Ásahrepps hefði sýnt jafnnytháar kýr
og Nautgriparæktarfélag Ölfushrepps, hefði það átt
að vera liið íjórða hæsta á sýningunni að stigatölu. Ef
Nautgriparæktarfélag Rangárvallahrepps hefði sýnt
jafn hámjólka lcýr og Nautgriparæktarfélag Skeiða-
hrepps, hefði það átt að vera það þriðja hæsta að stiga-
tölu. Sýna þessi dæmi, að á sýningunni var, sem betur
fór, margt góðra gripa, enda höfðu flestar kýr sem
þarna mættu áður hlotið I. verðlaun á hreppasýn-
inguni, og flest nautið höfðu áður hlotið II. verðlaun
á hreppasýningum.
Fylgja hér tvær myndir af gripum úr þeim hóp-
um, sem ekki fengu verðlaun á þessari sýningu, þ. e.
Gylfi, mynd 7, sýndur af Nautgriparæktarfélagi Rang-
árvallahrepps, og Von á Syðri-Hömrum, mynd 8, sýnd
í Nautgriparæktarfélagi Búbót í Ásahreppi; var þessi
siðastnefnda talin vera einhver hezt byggða kýr á sýn-
ingunni.
Var nautgriparæktarfélögunum á sambandssvæðinu
sóini að sýningu þessari, og eiga þau þakkir skilið fyrir
þátttökuna þótt fyrirfram væri vitað, að einungis fá
þeirra gætu hlotið verðlaun, en þó vil ég geta þess, að
tvö nautgriparæktarfélög, sem með góðum árangri og
sér til sóma, hefðu getað tekið þátt í sýningunni,
sátu hjá, þ. e. nautgriparæktarfélögin í Fljótshlíð og
Gnúpverjahreppi. Eitt naut á sýningunni var ættað
úr Fljótshlíð, Hólarauður, og úr Gnúpverjahreppi hafa