Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 255
BÚNAÐARRIT
247
■vinnu í félaginu, þegar þeir almennt urðu notaðir, en
á þessu tímabili gengu úr fimm ár, er engar jarðabóta-
mælingar fóru fram í félaginu.
Á þessu tímabili gekk félagið í Ræktunarfélag Norð-
airlands. Áleit félagið skyldu sína að styðja tilrauna-
-•starfsemi fyrir landbúnaðinn. Dagsverkatala á þessu
tímabili er 541G, eða 36 dagsverk á hvern ársjarða-
bótamann. Opinber styrkur kr. 948.00 og meðaltöðu-
fall á ári 3430 hestar.
Tíu ára tímabilið frá 1915—1924 er viðburðaríkt í
búnaðarfélaginu eins og annarsstaðar. Stríðið mikla
slcall á og olli megnum straumhvörfum í lífi og háttum
allra einstaklinga, félaga og heildar. Samfara stríðinu
og afleiðingum þess gerði þrjá harðindavetra, 1916,
1918 og 1920, sem allir orsölcuðu meiri og minni mat-
argjöf handa búpeningi, þótt veturinn 1920 yrði þar
stórum mestur, því þann vetur gáfu menn hér í sveit-
inni mjög mikinn mat búfénaði, eða sem nam fleiri
þúsundum króna á sumum heimilum. Er hér í sveit
mest þrautabeit fyrir sauðfé og hross í héraðinu, en
brást nú alveg, og varð því hér tilfinnanlegust. Þá
komst rúgmjölstunnan upp í 80—90 kr. hér á Blöndu-
ósi, og eftir þvi var annað verð. Jafnhliða þessu hækk-
aði kaup verkafólks stórmikið, og að afloknu stríði,
er afurðaverð féll, þá hélst kaup verkafólks svo hátt,
að framleiðendur á þessu félagssvæði gátu alls ekki
goldið það kaup, meðfram vegna afleiðinga hörðu
vetranna. Búnaðarfélagið hélt þó áfram sinni fyrri
starfsemi, hvað jarðræktina snerti, enda þokaðist stöð-
ugt áfram á því sviði. Var þá farið að taka plæginga-
menn til uinferðar í félaginu og jafnframt óbrotna
verkamenn.
Dagsverkatala jarðabóta í félaginu á þessu tímabili
1063. Komu þá 26,5 dagsv. árlega á hvern félagsmann.
Opinber styrkur var kr. 1207.00, og meðal töðufall
3520 hestar.