Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 92
86
B Ú N A Ð A R R I T
IX. Hrossaræktarfélag Gaulverjabæjarhrepps.
Nr. 126. Sleipnir frá Hraunsfirði, f. 1925, rauður, 136
—152—16,5—22,5 (þá 4 v.). For.: Mósi, undan Skessu
í Bjarnarhöfn, og Hera í Bjarnarhöfn. I. verðl. 1929,
1930, 1933 og 1937. II. verðl. fyrir afkvæmi 1937.
Báðar ættir Sleipnis eru af Norðurlandi, að mestu
frá Flögu í Vatnsdal. Hann er fríður hestur og rétt-
vaxinn og allt útlit svo, að sómdi vel á góðum reiðhesti.
Með Sleipni voru sýndar tvær dætur hans og tvær
sonardætur Nasa frá Skarði, nr. 88, allt fallegar hryss-
ur. Þó duldist ekki að þær voru ekki af samstæðum
stofni, en gott spor í áttina.
X. Hrossaræktarfélag Austur-Landeyja.
Nr. 158. Húni frá Hindisvík, f. 1929, rauður, 135—
148—17,0—23,0 (þá 4 v.). For.: Stjarni, Hindisvík, nr.
118, og Snegla, Hindisvík. II. verðl. 1933 og I. verðl.
1937.
Húni hefir ekki horið gæfu til að fá það fóstur, sem
hann þurfti, og þess vegna aldrei fengið þann þroska
sem honum var eðlilegur. Því er hann að öllu grann-
byggður. Þó hefir hann réttan bol og rétta fætur. —
Ég hefi það fyrir satt, að á þessa sýningu hafi enginn
hestur komið betur byggður, ef metið er af sanngirni
eftir ástæðum öllum.
Hryssurnar, sem fylgdu Húna, voru myndar hross.
Má því búast við góðum árangri af honum sem kyn-
bótahesti, ef börnum hans gefst eðlilegur þroski.
XI. Hrossaræktarfélag Villingaholtshrepps.
Nr. 143. Vinur frá Reykhólum, f. 1926, jarpur, 139 -
155—18,0—24,0. For.: Jarpur, Gufunesi, undan Óðni,
Iteykhólum, og Blesa, Skeggjastöðum, dóttur dóttir