Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 102
96
BÚNAÐARRIT
IV. Krossanesætt.
1. Nr. 147, Skolur, Krossanesi, f. 1927. — Stokkhólma
1934: Dökkjarpur, 137—160—18,0—24,0. — For.
Brúnn, Löngumýri og Svöludóttir, Krossanesi. —
Eig. Sigurður Óskarsson, Krossanesi. I. verðl. 1934
og 38. II. verðl. fyrir afkvæmi 1938.
Skolur er fríður í andliti, vel reistur en háls-
inn nokkuð sver, bakið rétt og traust og svo lend-
in, fæturnir vel settir og réttir, heldur breiðar
síður og kviðurinn því of þungur. Þó er hesturinn
gæðingur. Afkvæmi hans líkjast honum vel, eink-
um að fríðleika í andliti og réttum fótum, en eru
heldur smávaxin.
2. Nr. 188, Jarpskjóni, Syðri-Völlum, f. 1932. —
Staðarbakka 1938: Jarpskjóttur, 134—156—17,0—
24,0. — For. Skolur, Ivrossanesi, nr. 147, og Brunka,
Stóra-Vatnsskarði. — Eig. Steinhjörn Jónsson,
Syðri-Völlum. — I. verðl. 1938.
Skjóni er fríður, fínbyggður og reiðhestslegur og
svipar um margt til föður síns.
Um framætt Skols veit ég svo lítið, að ég er varla í
rétti að tala um Krossanesætt, en afkvæmi Skols líkj-
ast honum svo rækilega, og flest á sama hátt, að þetta
-er ættstuðull með miklu arfgengi og mörgum kostum,
en líkur benda til að nýtt blóð þurfi til að fyrirbyggja
of lítið vaxtarrými lirossanna. Ef slík blöndun heppn-
aðist svo, að kostir Skols notuðust til hlýtar, þá væri
hann mikils virði.
V. Geitaskarðsætt.
1. Nr. 178, Gráni, Brandsstöðum, f. 1933. — Bólstað-
arhlíð 1938. Grár, 135—156—18,0—24,0. — For.
Þokki frá Brún, nr. 134, undan Hárek frá Geita-
skarði, nr. 105, og Jörp, Brandsstöðum. — Eig.
Jósafat Jónsson, Brandsstöðum. — I. verðl. 1938.