Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 72
BÚNAÐARRIT
66
Taflan sýnir, að hefði mætt á sýningunni hópur gripa
sem ekki náði betri reynslu en meðaltal landsins er, þá
hefði sá hópur ekki átt að fá hærri einkun en 24 stig.
Eins og taflan ber með sér hlaut Nautgriparælctar-
félag Hrunamannahrepps I. verðlaun (300 kr.) fyrir
sinn hóp. í þeim hóp var sýnd nythæsta kýr á sýning-
unni, Huppa á Kluftum (mynd 1), og sonur hennar
Máni (mynd 2).
Tel ég Nautgriparæktarfélag Hrunamannahrepps vel
að fyrstu verðlaununum komið, enda höfðu kýrnar
þar langmesta nythæð. Vil ég í því sambandi einnig
benda á tvennt, annað meira til gamans en hitt virki-
lega til stuðnings þessu. Fyrst er það, að á fyrstu hér-
aðssýningu sem haldin var við Þjórsárbrú 1906, var
aðeins einu nauti veitt fyrstu verðlaun og var það eign
Nautgriparæktarfélags Hreppamanna, Skjaldi; en liitt
er það, að þegar tekin voru út úr skýrslum nautgripa-
ræktarfélaganna 10 arðsömustu kúabú landsins á áx-
inu 1936, þá kom í Ijós, að 4 þeirra voru i Hruna-
mannahreppi.
Önnur verðlaun, 200 kr„ hlaut Nautgriparæktarfélag.
Hraungerðishrepps, er sýndi 5 systkin afkvæmi Gamla
frá Hjálmholti, þar á meðal Lukku á Litla Ármóti,
mynd 3, og nautið Nxima, mynd 4. Fengu þessi systkiix
úr Hraungerðishreppnum hæstar einkanir fyrir hygg-
ing á sýningunni en náðu ekki þeirri reynslu, að þa5
gæti tryggt þeim fyrstu verðlaun.
Þriðju verðlaun, 100 kr„ fékk Nautgripai'æktarfélag
Biskupstungna er sýndi nautið Kluftabrand, mynd 5,
og meðal kúnna tvær mæðgur frá Reykjavöllum en það
bú fékk verðlaun sem arðsamasta kúabú landsins á
árinu 1936.
Þriðju verðlaun, 100 kr„ fékk og Nautgriparæktar-
félag Villingaholtshrepps, sem var næst hæst á sýn-
ingunni með fitueiningar fyrir kýr, og enn hlaut þriðju
verðlaun Nautgriparæktarfélag Ölfushrepps, er sýndi